Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala Vínbúðanna um verslunarmannahelgina

03.08.2021

Sala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgi, sem er ein stærsta vika ársins í sölu, var 814 þúsund lítrar. Það jafngildir 3,6% aukningu frá fyrra ári, en þá seldust 786 þúsund lítrar. Aldrei áður hefur selst jafn mikið magn á einni viku í Vínbúðunum. Í síðustu viku komu 141 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar sem er um 0,3% fjölgun frá sambærilegri viku á fyrra ári.

Salan í júlí sló einnig met en skýring á aukningunni er að vikudagar júlí á þessu ári raðast þannig að stærstu söludagar fyrir verslunarmannahelgi og fyrstu helgi júlímánaðar eru allir í júlí. Sala júlímánaðar í Vínbúðunum var 3.023 þúsund lítrar sem er 1,5% aukning frá sama mánuði á fyrra ári. Aldrei áður hefur sala Vínbúðanna í einum mánuði farið yfir 3 miljónir lítra. 

Í júlí voru afgreiðslur til viðskiptavina 584 þúsund á móti 591 þúsund í fyrra sem jafngildir 1,2% fækkun viðskiptavina. 

Heildarsalan það sem af er ári er hins vegar um 4% meiri en í fyrra.