Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Innköllun vöru. Stella Artois í 330 ml glerflösku (vnr. 01851)

04.04.2018
Vínnes ehf. hefur ákveðið að innkalla vörubirgðir Stella Artois í 330 ml glerflösku (vnr. 01851)  sem merktar eru með neðangreindum auðkennum:

 

Best fyrir dags. Pökkunar númer Tímastimpill
 
20/5/18 49 8:00-23:59
20/5/18 49 0:00-1:00


Ætla má að vörur sem bera framangreind auðkenni hafi verið seldar í verslunum ÁTVR um mitt ár 2017. Ráðist er í innköllunina vegna möguleika á að gleragnir séu í umbúðum vörunnar. 

Þeir einstaklingar sem hafa Stella Artois í 330 ml glerflösku undir höndum með áðurnefndum auðkennum geta skilað þeim til Vínnes ehf. eða í næstu verslun ÁTVR og fengið nýja vöru í staðinn. Á vefsíðu Vínnes ehf. (www.vinnes.is) má nálgast nánari upplýsingar um málið og finna greinargóðar leiðbeiningar um hvernig skuli lesa úr merkingum á umbúðum vörunnar, þ.e. til að staðreyna hvort að vara falli undir innköllun.
 
Rétt er að undirstrika að innköllun þessi varðar ekki aðrar umbúðargerðir af vörunni Stella Artois.