Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Flúðum í nýjan búning

18.01.2017

Nú hefur Vínbúðin á Flúðum tekið stakkaskiptum, en búðin var stækkuð töluvert. Vínbúðin er á sama stað og áður, en er nú í öllu húsinu. Miklar breytingar voru gerðar á búðinni og innréttingar endurnýjaðar ásamt gólfefni, lýsingu ofl.

Eins og viðskiptavinir hafa líklega tekið eftir hefur mikið gengið á undanfarnar vikur, en opið hefur verið nánast allan framkvæmdatímann. Búðin var þó lokuð á mánudag og þriðjudag en opnar nú í dag í breyttri mynd.

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja og betri Vínbúð á Flúðum.