Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Flutt innan Smáralindar

13.12.2016

Vínbúðin í Smáralind hefur nú flutt sig um set innan Smáralindar, en töluverðar breytingar hafa verið gerðar á þeirri álmu sem Vínbúðin var áður í. Inngangurinn í álmuna var færður til og honum töluvert breytt og er nýja Vínbúðin vel staðsett hægra megin við þann inngang. Vínbúðin er björt  og skemmtileg og stór kælir er í búðinni. Fyrir þá sem ekki fá stæði á neðri hæðinni er vert að benda á að það er lyfta af efri bílastæðum niður við innganginn á neðri hæð. 

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja Vínbúð í Smáralind.