Greinar
23.05.2024
23. maí er alþjóðlegur Chardonnay dagur. Chardonnay er líklegast sú hvíta berjategund sem er hvað þekktust og hefur verið það mjög lengi. Þessi berjategund gefur af sér ólíka og fjölbreytta stíla, allt frá einföldum og tiltölulega ódýrum hvítvínum upp í dýrustu gæðahvítvín heims.
13.05.2024
Oft er talað um Sauvignon Blanc sem alþjóðlega þrúgu sem þýðir að hún er ræktuð víða í heiminum. Vín úr þessari þrúgu spanna allan gæðaskalann, með einkennandi ferska sýru og eru mörg hver í grösugri stílnum á meðan önnur bæta við sig ávaxtaríkari einkennum.
26.04.2024
Alþjóðlegur dagur Viognier þrúgunnar er 26. apríl. Viognier þrúgan (“ví-on-íe”) er upprunalega tengd Rónardalnum í suðurhluta Frakklands, þó hana megi einnig finna annars staðar í heiminum, eins og Ástralíu, Chile og Suður-Afríku. Í Rhône er hún hvað þekktust í norðurhlutanum í Condrieu, Château Grillet og Côte-Rôtie. Á síðastnefnda svæðinu má allt að 20% af henni vera gerjuð með rauðvínsþrúgunni Syrah.
10.04.2024
17. apríl er alþjóðlegur dagur Malbec þrúgunnar. Upprunalega var hún aðallega ræktuð í Cahors í Frakklandi þar sem hún er gjarnan kölluð Cot. Flestir tengja þó Malbec við Argentínu, enda oft kölluð einkennisþrúga landsins. Í Argentínu er hún mest ræktuð í Mendoza og er hægt að finna rauðvín úr Malbec í öllum gæðaskalanum, allt frá léttum og ávaxtaríkum, ungum rauðvínum og yfir í vín sem eru kraftmikil, hafa verið þroskuð í eikartunnum og eldast vel í mörg ár.
26.03.2024
Hér á Íslandi er vinsælt að hafa lambakjöt um páskana. Þegar kemur að því að velja vín með matnum er ýmislegt sem vert er að hafa í huga en þar skiptir eldunin máli, sem og meðlæti.
19.02.2024
Eitt af því sem fólk veltir stundum fyrir sér þegar það kaupir vínflösku er það hversu lengi sé hægt að geyma flöskuna óopnaða. ,,Vínið batnar með árunum” heyrist oft fleygt fram og á vissulega við í ákveðnum tilfellum, en sumum tegundum léttvína er þó ekki ætlað að vera geymd í mörg ár, eða áratugi. Frá náttúrunnar hendi eru það tannín (rauðvín), sykur, sýra og alkóhól sem fyrirfinnast í léttvínum, sem auka geymsluþol vínanna.
17.02.2023
Undanfarin ár hafa vinsældir Pinot Grigio aukist umtalsvert, ekki aðeins á Íslandi heldur einnig á heimsvísu. Pinot Grigio/Pinot Gris er náskyld Pinot Noir þrúgunni og þrátt fyrir að öllu jöfnu séu búin til hvítvín úr berjunum, þá eru berin rauðleit á lit
17.01.2023
Nú þegar rykið er rétt nýsest eftir jólin er ekki seinna vænna að huga að þorranum og hvað sé hægt að drekka með þorramatnum. Þessum súra það er að segja, en sýran er mjög afgerandi þáttur í bragðbyggingu matarins.
02.01.2023
Í Grikklandi hefur verið framleitt vín í að minnsta kosti 5000 ár, og jafnvel lengur segja sumir. Í hillum Vínbúðanna hefur úrvalið frá Grikklandi verið mjög misjafnt, en um þessar mundir má finna fjölmargar áhugaverðar vörur.
En við hverju má svo búast við af grískum vínum?
21.12.2022
Þegar kemur að því að velja vín eða drykk við hæfi með hátíðarmatnum getur reynst snúið að vita hvar á að hefja leitina. Þegar para á saman vín og mat, hvort sem það er jólamaturinn eða annar matur, eru ákveðin atriði sem gott er að hafa í huga.
Í fyrsta lagi er alltaf ágætt að finna sér eitthvað sem maður sér fram á að finnast gott að drekka.