Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínráðgjafar svara spurningum um veisluvín

Hvar get ég pantað bjórkút?

Pantið tímanlega

Bjórkúta þarf að sérpanta í vefversluninni - þeir eru ekki til á lager í Vínbúðum!
Vinsamlegast hafið í huga að panta tímanlega þar sem það getur tekið allt að viku að fá bjórkúta afhenta!

Dælur

Vert er að benda á að upplýsingar um dælur fyrir bjórkúta fást hjá heildsölum, en Vínbúðirnar bjóða ekki upp á leigu á slíku. Upplýsingar um heildsala er að finna í vöruspjaldi hverrar tegundar fyrir sig. Einnig er hægt að fá dælur leigðar hjá ýmsum þjónustuaðilum s.s. partýleigum. Athugið að dælur passa yfirleitt ekki á milli tegunda.

Tómir kútar / skil

Tómum kútum er skilað til heildsala (Vínbúðirnar taka ekki við þeim). Í sumum tilfellum er skilagjald á kútum innifalið í verði, en það er þá endurgreitt hjá heildsala við skil á kútum.