Vínráðgjafar svara spurningum
Ekki vera á síðustu stundu með að panta vín í veisluna því þá gæti endað með að þú endir með annað vín en lagt var upp með. Gott er að hafa 2-3 daga til að afgreiða vínin því verslanir eru oft ekki með stóran lager af öllum vörum.
Munið að þegar bera á fram freyðivín, hvítvín eða bjór þá þarf að hugsa tímanlega fyrir kælingunni. Best er að bera vín fram vel svöl og huga að því aðstaða sé til að kæla vínin. Eins þarf að huga að rauðvíninu tímanlega, þ.e. taka þau inn í stofuhita og bera þau fram um 16-18 gráður. Þó er það aðeins misjafnt eftir vínum, en starfsfólk vínbúða ætti að geta svarað því hvaða hitastig hentar hverju víni best.
Reynið að forðast of kraftmikil vín þegar vín eru valin í veislu (á aðallega við um rauðvínin). Veljið heldur léttari vínin frá Nýja-heiminum, spænsk Crianza vín eða léttari frönsk vín. Reyndar er hægt að finna létt vín frá flestum löndum en leitið gjarnan ráðgjafar eða smakkið sjálf. Hvítvínin mega gjarnan vera ávaxtarík og sæmilega kröftug en fyrir alla muni þurr. Góður Chardonnay, ítalskur Soave, ný-sjálenskur Saugvigninon Blanc eða önnur sæmilega kröftug.
Það eru ekki margar veislur sem haldnar eru án þess að bjór komi við sögu og þá vakna spurningar um hvort á að vera með litlar eða stórar dósir. Sniðugt er að vera með litlar dósir ef ekki er einhver sem sér um að hella í glös því að oft verður töluvert eftir í þeim stóru. Góð hugmynd er einnig að vera með glerflöskur (flottar á klaka).
Gefið ykkur tíma til að smakka og þá gjarnan með matnum sem bera á fram í veislunni eða leitið ráða hjá vínráðgjöfum Vínbúðanna. Veljið vín sem þið kunnið að meta og líklegt sé að þorri gesta verði ánægður með. Til að gera góða veislu enn betri þá er gott að vanda valið á vínunum. Berið saman verð og reiknið út að t.d. í 100 manna veislu þar sem nota þarf 50 fl. þá eykst kostnaðurinn einungis um 5000 kr. þegar keypt eru 100 kr. dýrari (og stundum betri) vín.
Reglan segir að þurrt henti betur sem fordrykkur og komi munnvatnskirtlunum af stað. Við Íslendingar erum þó dálitlir sætukoppar þannig að freyðivín með smá sætu í eru vinsæl. Freyðandi norður-ítölsk Asti spumante eru vinsæl en prufið gjarnan Moscato d‘Asti sem eru léttari í freyðingu og lægri í alkóhóli. Freyðivín frá Cava á Spáni eru líka vinsæl þar sem Brut er þurrast, Seco hálfþurrt (nýtur vaxandi vinsælda) og sætast af þessum er Semi Seco. Til eru líka afbragðs freyðivín frá öðrum löndum, ekki síst frá nýja heiminum. Fátt jafnast þó á við ekta Kampavín en þau eru yfirleitt töluvert dýrari.
Klassískt viðmið er hálf flaska á mann í heildarmagni og um líter af bjór. Varðandi freyðivínsmagn þá nást um 8 glös úr flöskunni, en síðan er spurningin hversu marga umganga á að veita. Algengt er að reikna ríflega 2 glös á mann. Til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af magni í vínföngum þá taka flestir aðeins ríflega (öryggisbyrgðir) þannig að ekki þurfi að hafa áhyggjur hvort magnið dugi því alltaf má skila því sem eftir verður (muna að taka nótu).
Hér svara vínráðgjafarnir algengum spurningum um vín og veislur. Endilega sendu þína fyrirspurn til vínráðgjafanna á netfangið:
veisluvin@vinbudin.is