Úrvalsvín Vínbúðanna eru vín sem eru sérvalin til að bæta úrval vína í hillum vínbúða.

Í flokk Úrvalsvína eru valin vín sem talin eru vanta í almennt vöruúrval, en Vínbúðirnar leggja metnað í að  bjóða framsækið og fjölbreytt vöruúrval, í samræmi við væntingar viðskiptavina. Í þennan flokk eru einnig oft valin svokölluð sígild vín, en það eru vín sem hafa í áranna rás fest sig í sessi fyrir framúrskarandi gæði.  

Markmiðið með Úrvalsvínum er að koma til móts við viðskiptavini, en undanfarin ár hefur eftirspurn farið vaxandi á betri vínum. Fylgist með Úrvalsvínum Vínbúðanna á vinbudin.is og í hillum Vínbúðanna.

Listi Úrvalsvína er birtur  hér á vinbudin.is, en Úrvalsvínin verða einnig sérmerkt í hillum Vínbúðanna.

 

Hvar nálgast ég lista yfir Úrvalsvín

Til baka

(0)
shopping cart
Samtals 0 kr.
Litla karfan
Engar vörur í körfu
n/a
n/a stk * n/a = n/a
Sett í körfuna


 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit