Réttu tækin
Til að hafa sem mesta ánægju af að blanda kokteila eða aðra drykki þá er nauðsynlegt að hafa réttu tækin. Mikilvægast er sjússamælir, en til að drykkurinn heppnist sem best er nauðsynlegt að mæla rétt það sem á að fara í hann. Því næst kemur svo kokteilhristari og/eða rafmagnsblandari. Kokteilar sem blandaðir eru í rafmagnsblandara verða mýkri og loftkenndari en þeir sem eru hristir.
Annað sem er gott að hafa við höndina er strainer eða klakasigti til að skilja klakann frá þegar hellt er í glös. Sítrónupressa, barskeið og að sjálfsögðu upptakari, tappatogari, góður hnífur og skurðarbretti til að skera ávexti. Og síðast en ekki síst glasamottur eða litlar servíettur. Ekki má heldur gleyma drykkjarstráum og hræripinnum.
Hvenær á að hrista og hvenær á að hræra?
Kokteill á að vera ískaldur, ferskur og hressandi. Það á að hrista kokteila kröftuglega en ekki vagga þeim í svefn. Tæra drykki á að hræra, eins og t.d. Dry Martini, hann á að vera tær. James Bond bað um Vodka Martini, hristan en ekki hrærðan, svo það má víst brjóta reglurnar, fyrst Bond gat leyft sér það. Kokteilar sem innihalda ávaxtasafa, ávexti eða rjóma á að hrista, kjósi maður mýkri áferð, gerir rafmagnsblandari það. Séu gosdrykkir í kokteilnum eru þeir settir í eftir að búið er að hrista annað hráefni saman, annars má búast við vætutíð.
Það kemur fyrir að það er ekki til rétta áfengið sem á að fara í drykkinn. Stundum má bjarga sér með því að nota annað í staðinn. Til dæmis ef ekki er til tequila þá má nota vodka. Eins ef ekki er til Triple Sec,má nota Cointreau eða Grand Marnier í staðinn. Útkoman verður þín útgáfa af drykknum.
Það er gaman að bjóða gestum upp á fallega og bragðgóða kokteila í samkvæmum, en meðferð áfengis er vandasöm, og hlutverk gestgjafans felst jafnt í því að skemmta gestum sínum sem og að veita í hófi.
n/a
n/a
stk *
n/a
=
n/a
Sett í körfuna