Bjór í veislur

MAGNIÐ : Þegar halda á veislur þá er bjórinn stór þáttur í mörgum samkvæmum. Þá vakna þessar klassísku spurningar hvað þarf ég mikinn bjór í veisluna og hvernig bjór? Vaninn er að reikna með um lítra á mann (2 stórir eða 3 litlir). Margt getur þó spilað inní eins og hversu lengi veislan á að standa eða hvort einungis sé boðið upp á bjór en þá má aðeins auka magnið. Annað sem horft er til er t.d. aldurssamsetning gesta eða jafnvel árstími en meira virðist fara í veislur á sumrin.

 

GLER EÐA DÓSIR : Þegar velja skal á milli flösku eða dósabjórs ber að hafa nokkra hluti í huga. Í flestum tilfellum er aðeins dýrara að vera með flöskur en að sama skapi sparast gjarnan einhver glasaþvottur. Mörgum finnst það kannski hátíðlegra að vera með flöskur en dósir en það skiptir litlu þegar einhver sér um að hella í glösin. Það sama gildir um val á milli stórra bjóra og lítilla að þegar þjónusta er fyrir hendi (hellt í glös) þá eru stórir bjórar oftast ódýrari. Litlu bjórarnir eru hentugri þegar ekki er þjónustað, því þá verður ekki afgangur þegar hellt er í glös en þau taka flest 330 ml, ekki 500 ml.

 

HVERNIG BJÓR : Lagerbjór er vinsælastur en einnig er tekinn oft léttur (light) bjór með. Annars er gjarnan litið til þess að valin sé bjór frekar hlutlaus í stílnum og henti sem flestum.

 

BJÓR Á DÆLU : Annar kostur er að hafa bjór á kútum sem til eru 25 eða 30 lítra. Það eru líka til 5 lítra kútar fyrir sérstakar dælur eða tilbúnir með krana. Ekki það að bjór á kútum sé endilega ódýrari en það er þessi vissi ferskleiki sem kranabjórinn hefur sem fólk sækist eftir. Panta verður tímanlega dæluna hjá birgjum þannig að tryggt sé að dælur séu ekki allar í útleigu.  Hafa verður í huga þegar kranabjór er valinn að dælan sem notuð er passi á kútinn. Kolsýrukútur fylgir í flestum tilvikum með en mörg fyrirtækin hafa leigugjald og sum eru með tryggingagjald sem endurgreitt er þegar dælunni er skilað. Á flestum tegundum af kútum er skilagjald sem greiðist þegar kútunum er skilað en þeim er skilað til birgja, ekki í Vínbúðina. Gott er að tengja dæluna tímanlega og láta dæluna ganga eins og sagt er til að bjórinn kælist vel og freyði ekki of mikið.

 

Endilega hafðu samband ef þú hefur
fleiri spurningar varðandi veisluna þína!

veisluvin@vinbudin.is
Sími: 560-7730


Júlíus Steinarsson, vínráðgjafi

Úr Vínblaðinu (3.tbl.7.árg)


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit