Algengar spurningar
Vínbúðirnar hafa farið af stað með nýja herferð undir slagorðinu: "Seturðu hvað sem er upp í þig? Munntóbak er ógeð!" Markmiðið er að stuðla að minni notkun neftóbaks á meðal ungs fólks í samræmi við markmið laga og stefnu fyrirtækisins um samfélagslega ábyrgð.
Auglýsingunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um skaðsemi munntóks og minna ungt fólk á að munntóbak er skaðlegt ekki síður en ógeðslegt. Í auglýsingunni er munntóbaki líkt við rusl til að vekja athygli á því að engum myndi detta í hug að hafa það langtímum saman í munninum.
Auglýsingin er fyrsta íslenska auglýsingin sem framleidd er í þrívídd og verður hún sýnd í kvikmyndahúsum. Þannig er reynt að ná til ungs fólks, en ungir karlmenn eru í miklum meirihluta neytendur samkvæmt könnun sem Landlæknisembættið gerði fyrri hluta árs 2012 (http://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item17602/version1/Skyrsla%20tobak.pdf).
Einnig verða birtar áminningar á netinu og ruslafötum komið fyrir á nokkrum stöðum, m.a. í bíóhúsum.
Upplýsingar um allar vörur í vöruvali Vínbúðanna er að finna í Vöruleitinni á vef okkar þ.m. hvort varan sé til og þá í hvaða Vínbúð.
Fara beint í Vöruleit.
Þú getur farið í næstu Vínbúð og sérpantað vínið. Við könnum hvort varan sé fáanleg hjá birgja og ef svo er þá getur þú keypt vöruna í gegnum okkur. Athugaðu jafnframt að innflutningur á áfengi til einkanota er heimill hverjum sem hefur náð 20 ára aldri. Viðeigandi gjöld eru þá greidd við tollafgreiðslu vöru.
Reglur um sérpantanir ÁTVR á áfengi:
Samkvæmt 13. gr. reglugerðar nr. 755/2011 um vöruval áfengis og skilmála í viðskiptum við birgja má sérpanta hjá ÁTVR það áfengi sem ekki er til sölu í vínbúðum fyrirtækisins.
Val á vörum sem ÁTVR sérpantar fyrir viðskiptavini sína er sömu skilyrðum háð og annað vöruval áfengis. ÁTVR sérpantar þannig ekki vörur sem fyrirtækið hefur hafnað að taka til reynslusölu eða yrðu ekki teknar til sölu hjá því. Þetta á þó ekki við ef höfnun ÁTVR hefur verið eða yrði einungis af „praktískum“ ástæðum, til dæmis vegna takmarkaðs hillupláss í vínbúðum, einkum vegna stærðar eða lögunar umbúða eða fjölda umbúðategunda um sömu vöru.
Rétt er að benda viðskiptavinum á að einstaklingar, 20 ára og eldri, eiga þess kost að flytja inn áfengi til eigin nota og greiða þá af því lögboðin aðflutningsgjöld, m.a. áfengisgjald.
Sjá reglugerð (13.gr.)
Hægt er að skila skemmdu víni sem keypt er í Vínbúðum gegn framvísun kassakvittunar. Viðskiptavinur getur annaðhvort fengið samskonar vín í staðinn eða inneignarnótu.
Skilafrestur á öllum vörum er 30 dagar frá kaupum, en sé vara gölluð vegna rangrar geymslu og/eða runnin út á tíma (bjór) hjá viðskiptavini, er ekki tekið við vörunni.
Álagning ÁTVR er föst prósentuálagning fyrir annars vegar bjór og léttvín og hins vegar sterk vín. Mismunandi álagning er og á vörur í reynslusölu og kjarnasölu. Álagning reiknast af heildsöluverði frá birgja, en það heildsöluverð inniheldur áfengisgjald og skilagjald, enda greiðast þau gjöld við tollafgreiðslu vöru.
Vara sem kemur inn í sölukerfi ÁTVR fer fyrst í gegn um reynslusölu. Reynslusölutímabil er tólf mánuðir. Á tólfta mánuði er framlegð vörunnar mæld og þarf varan að ná framlegðarviðmiði kr. 125.000 eða 75% af framlegð sex hundruðustu tegundar á framlegðarskrá (velja skal lægra viðmiðið) til að flytjast í kjarna og halda áfram í sölu. Vara sem ekki nær viðmiði skv. framangreindu fellur af söluskrá.
Viðskiptavinir eru hvattir til að nýta sér Veisluvínsþjónustu Vínbúðanna, sem staðsett er í Vínbúðinni Heiðrúnu. Hægt er að fá ráðgjöf á staðnum, símleiðis eða með tölvupósti. (sjá nánar hér).
Afgreiðslutími Veisluvínsþjónustunnar er mán - fös: 11-17.
Veisluvíns-síminn er 560-7730 og netfangið veisluvin@vinbudin.is
Innflutningur á áfengi til einkanota er heimill hverjum sem hefur náð 20 ára aldri. Viðeigandi gjöld eru greidd við tollafgreiðslu vöru.
Áfengisheildsöluleyfi eru eingöngu gefin út á skráða rekstraraðila en einstaklingur þarf jafnframt að vera skráður ábyrgðaraðili.
Á vef ríkislögreglustjóra undir liðnum "spurt og svarað" er að finna greinargóðar upplýsingar um umsóknir og útgáfu áfengisheildsöluleyfa. Vefslóðin er
www.rls.is eða
www.logreglan.is.
Ríkislögreglustjóri gefur út áfengisheildsöluleyfi, en sýslumenn annast útgáfu vínveitingaleyfa.
Handhafar áfengisheildsöluleyfa mega flytja inn áfengi til endursölu. Áfengisheildsöluleyfið veitir rétt til þess að selja vöruna áfram til endurseljenda, en það eru handhafar vínveitingaleyfa (föst vínveitingaleyfi, s.s. veitingahús, hótel, barir o.s.frv) og ÁTVR sem hefur einkaleyfi til smásölu á áfengi.
Leyfi ríkislögreglustjóra þarf til innflutnings, heildsölu og framleiðslu áfengis í atvinnuskyni (http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/828-2005 )
Allir þeir sem náð hafa tilskyldum aldri (20 ár) mega flytja inn áfengi TIL EIGIN NOTA. Tilskylin gjöld (áfengisgjald, skilagjald og VSK) eru greidd við tollafgreiðslu vörunnar.
Leyfi ríkislögreglustjóra þarf til innflutnings, heildsölu og framleiðslu áfengis í atvinnuskyni (http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/828-2005 )
n/a
n/a
stk *
n/a
=
n/a
Sett í körfuna