Fréttasafn

24.12.2006 | Jólakveðja

Gleðileg jól

22.12.2006 | ÁTVR auglýsir eftir leiguhúsnæði á Akureyri

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að taka á leigu um 600 m² húsnæði á Akureyri vegna vínbúðar.

20.12.2006 | Afgreiðslutími yfir hátíðarnar

Afgreiðslutími vínbúðanna á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, Keflavík og Selfossi.

19.12.2006 | 2 milljónir kassa afgreiddir á þessu ári

Öll dreifing á áfengi til vínbúða ÁTVR fer í gegnum dreifingarmiðstöð fyrirtækisins. Í dag var 2.000.000 kassinn afgreiddur frá dreifingamiðstöðinni það sem er af árinu. Þetta er í fyrsta sinn sem afgreiðslan fer yfir 2 milljónir, en á síðasta ári voru afgreiddir 1.850.000 kassar....

14.12.2006 | Afgreiðslutími yfir hátíðirnar

Afgreiðslutími yfir hátíðirnar

29.11.2006 | Veisluvínsþjónusta í vínbúðunum

Vínbúðirnar bjóða viðskiptavinum sínum uppá Veisluvínsþjónustu. Oft reynist erfitt að ákvarða rétt magn af víni fyrir veislur eða velja vín með matnum og þá er gott að fá aðstoð hjá vínráðgjafa vínbúðanna, Júlíusi Steinarssyni....

28.11.2006 | Vínbúðin á Reyðarfirði stækkuð

Nýlega var vínbúðin á Reyðarfirði stækkuð um 2/3, úr 50 m² í 150 m². Eru breytingarnar í takt við mikla fólksfjölgun í Fjarðabyggð undanfarin misseri. Í Vínbúðini á Reyðarfirði eru um 200 tegundir til sölu, þar af eru 110 söluhæstu léttvínin og 25 söluhæstu bjórtegundirnar.

21.11.2006 | Jólafólk óskast

Starfsfólk óskast til starfa í vínbúðirnar í desember og kringum áramót, bæði í fullt starf og hlutastarf. Reynsla af verslunarstörfum er kostur en ekki skilyrði. Umsækjendur þurfa að búa yfir ríkri þjónustulund og góðri framkomu.

16.11.2006 | Norðmenn fræðast um fyrirkomulag samstarfsverslana hjá ÁTVR

Hópur frá Vinmonopolet, norsku áfengiseinkasölunni, hefur dvalið hér undanfarna daga til að fræðast um fyrirkomulag samstarfsverslana hjá ÁTVR. Hjá Vinmonopolet er í skoðun að opna smærri verslanir á landsbyggðinni...

16.11.2006 | Hátíðarvín í Vínbúðunum

Nú eru jól og áramót á næsta leiti og því tilvalið að fara að íhuga rétta vínið með hátíðarmatnum. Vínbúðirnar gera sitt besta til að auðvelda viðskiptavínum sínum valið með því að halda þemadaga þar sem hátíðarvínin eru í hávegum höfð...

08.11.2006 | Landsfundur ÁTVR

Árlegur Landsfundur ÁTVR var haldinn 6. nóvember sl. Fundinn sækja allir verslunarstjórar, deildarstjórar og framkvæmdastjórar ÁTVR auk forstjóra og fara yfir þau málefni sem eru efst á baugi í starfsemi ÁTVR. Landsfundir eru mikilvægir þættir í viðamikilli starfsemi ÁTVR, en fyrirtækið rekur nú 46 vínbúðir um allt land.

05.11.2006 | Verslunarstjóri í Vínbúðinni Akureyri óskast til starfa

Laus er til umsóknar staða verslunarstjóra hjá ÁTVR í Vínbúðinni Akureyri. Umsóknarfrestur rennur út 19. nóvember n.k. Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.

03.11.2006 | Sérfræðinganámskeiðið hjá Vínskóla ÁTVR

ÁTVR hefur um tveggja ára skeið rekið Vínskóla fyrir starfsfólk fyrirtækisins, þar sem kennd eru grunn- og framhaldsnámskeið í vínfræðum. Nú í nóvember byrjun hófst kennsla í fyrsta sérfræðinganámskeiði á vegum Vínskólans. Sex manns úr ýmsum vínbúðum sækja námið, sem kennt er einu sinni í viku næstu 12 vikurnar....

02.11.2006 | Eldri starfsmannafatnaður ÁTVR afhentur Rauða Kross Íslands

Nýr einkennisfatnaður hefur verið tekinn í notkun í Vínbúðunum. Eldri einkennisfatnaði var safnað saman á Stuðlahálsi ásamt öðrum fötum sem starfsfólk lét af hendi rakna. ...

02.11.2006 | Verðskrá tóbaks

Ný verðskrá fyrir tóbak er komin út og gildir frá 1. nóvember 2006.

24.10.2006 | Vínbúð á Hellu

Fjármálaráðuneytið hefur samþykkt opnun vínbúðar á Hellu, en sveitarstjórn Hellu óskaði eftir því að vínbúð yrði opnuð í bænum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvenær ráðist verði í framkvæmdir vegna opnunar

11.10.2006 | Vínsmökkunarnámskeið

Endurmenntun Háskóla Íslands í samvinnu við vínbúðir ÁTVR býður uppá Vínsmökkun II Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa nokkra þekkingu á vínsmökkun eða tóku þátt í námskeiðinu ,,Vínsmökkun I; ilmur, bragð, áferð-listin að meta vín"....

02.10.2006 | Verðbreytingar á tóbaki

Ný verðskrá tóbaks er komin út

01.10.2006 | Uppskerudagar í vínbúðunum

Nú eru Uppskerudagar í vínbúðunum og fjórar þrúgur í sviðsljósinu: Grenache/Garnacha, Riesling, Sauvignon Blanc og Syrah/Shiraz....

25.09.2006 | Sölustarfsemi í og við vínbúðir

Til ÁTVR berast oft beiðnir um að fá að selja t.d. happdrættismiða eða annað sæmbærilegt. Nú hafa verið settar reglur sem banna sölustarfssemi í og við vínbúðir og þær færðar í gæðahandbók....

21.09.2006 | Listaverkasýning í Vínbúðinni Dalvegi

ÁTVR gefur listamönnum sem þess óska tækifæri til að sýna verk sín í vínbúðum fyrirtækisins. Listamaðurinn Garðar Jökulsson sýnir nú verk sín í Vínbúðinni Dalvegi og er sýningin sú fyrsta eftir að reglur um sýningu listaverka í vínbúðum tóku gildi. Hægt er að festa kaup á verkum Garðars, en starfsmenn vínbúðarinnar veita frekari upplýsingar.

01.09.2006 | 1. september 2006

1.september breyttust afgreiðslutímar vínbúða á höfuðborgarsvæðinu....

28.08.2006 | Breyttir tímar í vínbúðunum

Þann 1. september var afgreiðslutími vínbúðanna samræmdur til að mæta þörfum viðskiptavina okkar....

23.08.2006 | Nýtt Vínblað

Nýtt Vínblað er komið út. Í blaðinu má meðal annars finna skemmtilega frásögn af sælkeraferð til Alsace þar sem vínum og matargerð svæðisins eru gerð góð skil. Einnig inniheldur blaðið að þessu sinni umfjöllun um fjórar algengar þrúgutegundir og hvaða matur hentar best með hverri þeirra. Hægt að nálgast Vínblaðið í öllum Vínbúðunum.

18.08.2006 | Salan um verslunarmannahelgina

Um 109 þúsund viðskiptavinir komu í vínbúðirnar í vikunni fyrir verslunarmannahelgina (vika 31), eða um 3% fleiri en í sömu viku árið 2005. ...

17.08.2006 | Hlutverkaskipti hjá starfsfólki ÁTVR

Á næstu vikum mun starfsfólk á skrifstofu ÁTVR vinna a.m.k einn vinnudag í vínbúð eða dreifingarmiðstöð fyrirtækisins, og í kjölfarið munu verslunar- og aðstoðarverslunarstjórar vínbúða á höfuðborgarsvæðinu kynnast störfum á skrifstofu. Hlutverkaskiptunum er ætlað að efla liðsandann og auka skilning á milli starfsstöðva....

03.08.2006 | Breyttur afgreiðslutími á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður lokað frá klukkan 16 föstudaginn 4.ágúst og lokað laugardaginn 5.ágúst í Vínbúðinni Vestmannaeyjum.

26.07.2006 | Starfsfólk óskast í dreifingarmiðstöð

Starfsfólk óskast í fullt starf á dreifingarmiðstöð ÁTVR. Vinnutími er frá kl. 7.30 til 16.30.

24.07.2006 | Sala áfengis janúar til júníloka 2006

Frá janúar til júníloka seldu vínbúðirnar rúmlega 8,5 milljónir lítra af áfengi. Er það 9,2% meiri sala en á sama tíma árið 2005. ...

13.07.2006 | Rausnarlegt framlag frá pokasjóði ÁTVR til framkvæmda við gerð göngustígar við Gullfoss

ÁTVR veitti Umhverfisstofnun 5 millj. kr. styrk úr Pokasjóði til framkvæmda við Gullfoss. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra tók við framlagi frá ÁTVR fimmtudaginn 13. júlí í umhverfisráðuneytinu. Þetta er í þriðja sinn sem ÁTVR hefur milligöngu um styrkveitingu til framkvæmda við Gullfoss.

10.07.2006 | Sala áfengis í júní

Sala áfengis í júní var tæp 14% meiri en í sama mánuði árið 2005

05.07.2006 | Sumarvínin!

Nú eru nýjir þemadagar hafnir í vínbúðunum og standa þeir til 5.ágúst. Í þetta skiptið eru sumarvínin allsráðandi. Að sjálfsögðu vilja flestir hafa gott vín með grillmatnum og þá er upplagt að fá hugmyndir og ráðleggingar úr nýja sumarvínabæklingnum sem hægt er að nálgast í öllum vínbúðunum

15.06.2006 | Vínbúðirnar verða lokaðar laugardaginn 17.júní.

Vínbúðin á Dalvegi og Holtgörðum eru opnar til 20:00 föstudaginn 16. júní.

06.06.2006 | Verðskrá tóbaks fyrir júlímánuð

Verðskrá tóbaks (pdf skjal) fyrir júlí er kominn inn á vinbud.is. Skránni hefur verið valinn nýr staður á síðunni, en nú er hægt að nálgast skránna undir liðnum Sölutölur á vinstri valslá.

01.06.2006 | Vínblaðið komið út

Nú er nýtt Vínblað komið út. Blaðið er stútfullt af grilluppskriftum, hugmyndum að sumarkokteilum og öðrum skemmtilegum fróðleik fyrir sumarið. Hægt er að nálgast eintak í vínbúðum um allt land.

11.05.2006 | Chile þemadagar

Nú eru hafnir nýjir þemadagar í Vínbúðunum. Að þessu sinni er Chile tekið fyrir, en Chile er að mörgu leiti mjög merkilegt land, hvort sem litið er á landið sjálft eða menninguna. Vínrækt hefur verið stunduð þar í langan tíma og vínin njóta mikilla vinsælda.

03.05.2006 | Ný verðskrá tóbaks 1.maí

Ný verðskrá tóbaks tók gildi 1.maí. ...

01.05.2006 | Opið 11-18 á laugardögum

Nú hefur afgreiðslutími Vínbúðanna á höfuðborgarsvæðinu verið samrýmdur...

12.04.2006 | Ársskýrsla ÁTVR komin út

Ársskýrsla ÁTVR er nú komin út þar sem gerð er grein fyrir rekstrartölum og helstu þáttum í starfsemi fyrirtækisins....

09.04.2006 | Truflanir vegna lagfæringa á vinbud.is

Vegna vinnu við lagfæringa á vef okkar, gætu sumir orðið varir við truflanir við notkun á vinbud.is mánudaginn 10.apríl. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem kunna að verða.

06.04.2006 | Listaverk í vínbúðum

ÁTVR gefur listamönnum sem þess óska tækifæri til að sýna verk sín í vínbúðum fyrirtækisins. ...

04.04.2006 | ÁTVR hf?

Stjórnarfrumvarp um að breyta ÁTVR í hlutafélag var dreift á Alþingi þriðjudaginn 4. apríl. Ekki er ljóst hvenær frumvarpið verður á dagsskrá þingsins...

04.04.2006 | Afgreiðslutími yfir páskana

Miðvikudaginn 12. apríl þ.e. daginn fyrir skírdag verða vínbúðir opnar eins og um föstudag sé að ræða. Á laugardeginum fyrir páska verður opið eins og venjulega. Lokað verður á skírdag, föstudaginn langa og annan í páskum.

03.04.2006 | Námskeiði frestað

Framhaldsnámskeiði í vínsmökkun hefur verið frestað. Haft verður samband við þá sem þegar voru skráðir, en áætlað er að halda námskeiðið í haust.

24.03.2006 | Framhaldsnámskeið í vínsmökkun

Síðastliðið haust hélt ÁTVR vínsmökkunarnámskeið fyrir almenning í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands. Námskeiðið var mjög vel sótt og var gerður góður rómur að því. Nú á vormisseri var ákveðið að endurtaka námskeiðið og er það nú í gangi...

21.03.2006 | Ný vínbúð opnuð í Garðheimum

Vínbúðin í Mjóddinni hefur nú fært sig um set og ný og glæsileg vínbúð var opnuð í húsnæði Garðheima í dag.

07.03.2006 | Ánægðustu viðskiptavinirnir í flokki smásölufyrirtækja

Vínbúðirnar hlutu viðurkenningu Íslensku ánægjuvorgarinnar fyrir hæstu einkunn í flokki smásölufyrirtækja...

02.03.2006 | Afrískir dagar

Afrískir dagar eru í vínbúðum í mars. Hægt er að nálgast bækling í næstu vínbúð, en nokkur valin afrísk vín eru á sérstöku kynningarverði...

13.02.2006 | Sala brennivíns á þorranum tvöfalt meiri en aðra mánuði ársins

Sala á íslensku brennivíni árið 2005 var um 5.300 lítrar. Á þorranum í janúar og febrúar seldust um 21% af árssölunni og að jafnaði má segja að sala brennivíns á Þorranum sé um tvöfalt meiri en í meðalmánuði.




 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit