Fréttasafn

30.12.2009 | Afgreiðslutími yfir hátíðirnar

Vikan fyrir gamlársdag er ein annasamasta vika ársins hjá Vínbúðunum. Við hvetjum því viðskiptavini til að vera snemma á ferðinni ef þeir vilja forðast biðraðir.

Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU verða Vínbúðir opnar sem hér segir:
- Miðvikudaginn 30.des opið til kl. 20
- Fimmtudaginn 31.des opið til kl. 13
- Föstudaginn 1.jan - LOKAÐ
- Laugardaginn 2.jan - OPIÐ skv. venju. (11-18)

Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma er að finna HÉR

ATH: Mánudaginn 4.janúar verður LOKAÐ í stærri Vínbúðum vegna talninga. (sjá nánar HÉR )

22.12.2009 | Áhrif breytinga áfengisgjalds á söluverð áfengis

Samþykkt voru í morgun á Alþingi lög um ráðstafanir í skattamálum sem taka meðal annars til hækkana á áfengis- og tóbaksgjalda.

Í lögunum er gert ráð fyrir 10% hækkun á áfengisgjaldi sem tekur gildi um áramót. Áætluð áhrif á smásöluverð eru nokkuð mismunandi eftir tegundum þar sem áfengisgjald er reiknað út frá áfengisprósentu.

Meðfylgjandi tafla sýnir dæmi um breytingar á nokkrum tegundum. Eins og sjá má gætir áhrifa breytingana mest á sterku áfengi...

10.12.2009 | Enn meiri leitarmöguleikar í vöruleitinni

Nú hafa bæst við tveir nýjir leitarmöguleikar í vöruleitinni. Hægt er að leita eftir NÝJUM vörum (allar nýjar vörur í mánuðinum) og einnig er hægt að finna þær vörur sem eru í TÍMABUNDINNI sölu (s.s. jólabjór, páskabjór ofl.)

Nú getur þú t.d. hakað við táknið 'Tímabundið' og fengið upp alla jólabjóra og jólavöru sem er í tímabundinni sölu í desember. Það sama gildir um páskabjóra og aðra árstíðar- og tímabundnar söluvörur.

Nýttu þér leitarmöguleikana í vöruleitinni til að finna einmitt það sem þú leitar að.

03.12.2009 | Sala áfengis dregst saman á milli ára

Sala áfengis fyrstu 11 mánuði ársins er 1,8% minni í magni en árið 2008. Á árinu hefur sala á rauðvíni dregist saman en sala á hvítvíni aukist. Sala á sterku áfengi þ.e. ókrydduðu brennivíni og vodka hefur dregist saman 11,5% í magni. Enn meiri samdráttur hefur orðið í sölu blandaðra sterkra drykkja eða 37%.

Salan í nóvember dróst saman um 4,1% samanborið við nóvember í fyrra. Þar vegur þungt minni sala á lagerbjór og sterkum drykkjum.

27.11.2009 | Frí heimsending ef keypt er fyrir meira en 50.000

Í Veisluvínsþjónustu Vínbúðanna getur þú fengið fría heimsendingu ef þú pantar fyrir 50.000 kr. eða meira.

Hér á vinbudin.is getur þú nú skoðað vöruvalið og verslað. Einnig er hægt að panta í síma 560 7730 eða senda tölvupóst á netfangið veisluvin@vinbudin.is.

Kynntu þér Veisluvínsþjónustu Vínbúðanna og nýttu þér ráðgjöf starfsfólks okkar ...skoða nánar

23.11.2009 | Margir bíða spenntir eftir jólabjórnum

Viðskiptavinir bíða margir spenntir eftir jólabjórnum, en mikið hefur verið spurt um það hvenær hann berst í Vínbúðir. Um sextán jólabjórar munu verða til sölu um þessi jól, en sala þeirra hófst, þriðja fimmtudag í nóvember, eða þann 19.nóvember . Einhverjar nýjar tegundir bætast í hóp jólabjóranna í ár, en að öðru leyti ættu viðskiptavinir að þekkja flestar tegundir frá fyrri árum.

11.11.2009 | Sala áfengis janúar til október

Sala áfengis í október var 15,3% minni í lítrum talið en í október árið 2008. Meginástæðu fyrir þessum mikla mun má rekja til þess að 31. október í fyrra kom mikill fjöldi viðskiptavina í Vínbúðirnar í kjölfar frétta í fjölmiðlum um yfirvofandi hækkun á áfengisgjaldi. Þann dag komu tæplega 44 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar en á hefðbundnum föstudegi koma að meðaltali um 29 þús. viðskiptavinir...

28.10.2009 | Pantaðu snemma og sæktu í þína Vínbúð

Í Vefbúðinni getur þú skoðað úrvalið í rólegheitum, pantað vörur og fengið sendar í Vínbúðina þína - án endurgjalds.

Til að versla í Vefbúðinni er einfaldlega farið í vörulistann t.d. með því að smella á einn af yfirflokkunum hér fyrir ofan eða smella á "Vöruleit" hér til vinstri. Ef varan er með mynd af körfu fyrir aftan, er hægt að kaupa hana í Vefbúðinni.

Úrvalið er mikið í Vefbúðinni og því hægt að segja að valið hafi stóraukist fyrir þá sem búa nálægt minni Vínbúðum...

07.10.2009 | Sala áfengis nánast óbreytt frá í fyrra

Sala áfengis fyrstu 9 mánuði ársins nánast óbreytt í magni á milli ára en salan í september dróst saman um 2,7%.

Það sem af er árinu hefur sala á rauðvíni dregist saman um 1,7% í magni á milli ára, sala á hvítvíni hefur aftur á móti aukist um 6,4%. Sala á lagerbjór jókst á milli ára um 1,5% en dregið hefur úr sölu á blönduðum drykkjum og ókrydduðu brennivíni og vodka á árinu. Sala í september er 2,7% minni í magni á milli ára.

23.09.2009 | Vínbúðin Siglufirði í nýjan búning

Vínbúðin Siglufirði hefur nú fengið á sig nýjan blæ, en nú er Vínbúðin orðin að sjálfsafgreiðsluverslun.

Vínbúðin Siglufirði er ein af elstu Vínbúðum landsins, en hún hefur verið starfrækt frá árinu 1932. Starfsemin flutti hinsvegar í núverandi hús árið 1945 og hingað til hafa viðskiptavinir fengið afgreitt yfir borð, eins og þekkt er í minni Vínbúðum á landsbyggðinni. ÁTVR rekur nú 49 Vínbúðir um land allt og eru um 26 þeirra svokallaðar minni búðir (með 100 til 200 tegundir í sölu).

Við vonum að viðskiptavinir verði ánægðir með breytingarnar, enda markmiðið að auka þægindi viðskiptavina og veita enn betri þjónustu.

22.09.2009 | Bjór í matargerð

Vín í matargerð er eitthvað sem flestir þekkja, hvort sem er til að sjóða upp úr, í sósuna, marineringu eða slíkt, en einhverra hluta vegna nota færri bjór í matargerð.

Það er mjög sniðugt að nota bjór til að meyra kjöt, en þar sem sýrustig bjórs er lægra en víns, brýtur bjórinn vöðvann ekki niður eins hratt og vínið. Bjór gefur matnum einnig góðan kryddkeim og eykur á fyllingu sósunnar og þéttleika. Auðvitað er ekki sama hvaða bjór maður notar, en bragðmikill bjór gefur meira bragð, humlaríkur bjór gefur meira krydd, dekkri bjór gefur meiri hnetu-, súkkulaði- og/eða lakkrískeim...

16.09.2009 | Tóbakssala jókst á fyrstu 8 mánuðum ársins

Velta í sölu á tóbaks fyrstu 8 mánuði jókst um rúm 19%, fór úr 5,6 milljörðum í 6,6 milljarða. Sala vindlinga, sem eru tæplega 92% af veltu tóbaks, minnkaði hins vegar í magni á tímabilinu um tæp 6%. Sala vindla minnkaði í magni um 2%, á meðan sala í reyktóbaki og neftóbaki jókst um 33% og 19% á tímabilinu...

15.09.2009 | Sala áfengis fyrstu 8 mánuði ársins jókst um 0,3%

Sala áfengis fyrstu 8 mánuði ársins jókst um 0,3% í magni miðað við sama tímabil í fyrra.

Sala rauðvíns dróst saman um 1,4%, sala hvítvíns jókst um 6,4%, en sala á brandí dróst saman um 21,5%. Sala á ókrydduðu brennivíni og vodka dróst saman um rúm 7% og aðrar bjórtegundir en lagerbjór og öl um rúm 35% Svipaður samdráttur er í blönduðum drykkjum eða 36,6%. Lagerbjór sem er tæp 79% af allri magnsölu Vínbúðanna seldist í rúmlega 10,7 milljónum lítra fyrstu 8 mánuði ársins og jókst salan um 1,8% frá því á sama tíma í fyrra.

08.09.2009 | Vínblaðið komið út

Nýjasta Vínblaðið er komið út og er hægt að nálgast í næstu Vínbúð. Meðal efnis í blaðinu er grein um bjór í matargerð og íslenskt smábruggerí, misheppnað markaðsátak Evrópusambandsins, breytt neyslumynstur áfengis á íslandi síðustu mánuði, bjór í veislur, íslenskar og norrænar hefðir í matseld...

01.09.2009 | Smáréttaveisla í september

Nú er Smáréttaveisla í Vínbúðunum í september. Smáréttir henta vel við ýmis tækifæri og jafnt fyrir litla sem stóra hópa. Þeir eiga mjög vel við í fjölmennum samkvæmum þar sem ekki er setið við uppdekkað borð og sömuleiðis er kjörið að bjóða upp á smárétti þegar fáir eru samankomnir, til dæmis þegar vinum er boðið heim.

Í Vínbúðunum er hægt að nálgast frábærar uppskriftir af smáréttum í norrænum anda og upplýsingar um hvaða vín henta með. Einnig er þar hægt að nálgast skemmtilegan bækling um smárétti...

27.08.2009 | Nýr uppskriftavefur á vinbudin.is

Nú er kominn í loftið uppskriftavefur á vinbudin.is þar sem hægt er að nálgast allar uppskriftirnar sem Vínbúðin hefur gefið út í gegnum tíðina á þemadögum eða í Vínblaðinu.

Hægt er að leita eftir flokkum s.s. fiskur, kjúklingur og eftirréttir og með hverri uppskrift eru tillögur að víni með sem vísar í vörulistann á vefnum.

Góða skemmtun og verði ykkur að góðu!
SKOÐA UPPSKRIFTAVEF

19.08.2009 | Hefur þú prófað Vefbúðina?

Í Vefbúðinni getur þú skoðað úrvalið í rólegheitum, pantað vörur og fengið sendar í Vínbúðina þína - án endurgjalds.

Til að versla í Vefbúðinni er einfaldlega farið í vörulistann á vinbudin.is. Hann er hægt að nálgast t.d. með því að smella á einn af yfirflokkunum hér fyrir ofan, smella á "Vöruleit" hér til vinstri eða smella á "Vörur" á vinstri stiku...

30.07.2009 | Annasöm vika framundan

Vikan fyrir verslunarmannahelgi er ein annasamasta vika árins í Vínbúðunum. Í fyrra komu 127 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar í þeirri viku. Föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi er einn af stærstu dögum ársins. Þann dag árið 2008 var engin undantekning, en þá komu tæplega 44 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar. Alls voru seldir tæplega 784 þúsund lítrar af áfengi þar af var bjór 89% eða 698 þúsund lítrar.

10.07.2009 | Sala áfengis fyrstu 6 mánuði ársins jókst um 0,4% miðað við sama tímabil í fyrra.

Sala rauðvíns dróst saman um hálft próstent, sala hvítvíns jókst um rúm 7%, en sala á viskí og brandí dróst saman um 22% og tæp 7%. Lagerbjór sem er tæp 79% af allri magnsölu Vínbúðanna seldist í tæplega 7,4 milljónum lítra fyrstu sex mánuði ársins og jókst salan um 1,6% frá því á sama tíma í fyrra...

08.07.2009 | Hefur þú notað vöruleitina?

Í vöruleitinni getur þú leitað að vínum eftir hinum ýmsu skilyrðum og auðveldað þér þannig leitina að ákveðnum tegundum.

Nú er einnig hægt að versla á vefnum, en ef karfa birtist fyrir aftan vöruna, þá er hún til í Vefbúðinni og þú getur fengið hana senda beint í þína Vínbúð, án nokkurs auka kostnaðar...

07.07.2009 | Íslenskir burðarpokar í Vínbúðunum

Plastprent og Ríkiskaup undirrituðu á dögunum samkomulag um kaup á burðarpokum fyrir Vínbúðir ÁTVR. Um er að ræða 6 milljónir burðarpoka á næstu tveimur árum. Plastprent bauð lægst í útboði Ríkiskaupa og er einkum ánægjulegt að öll framleiðsla plastpokanna fer fram hérlendis. Samninginn undirrituðu Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR og Sigurður Þorvaldsson, sölustjóri Plastprents.

26.06.2009 | Besta auglýsingin að mati áhorfenda í Cannes

Auglýsingin „Láttu ekki vín breyta þér í svín“ var valin besta auglýsingin úr flokki almannaheilla-herferða, valin af áhorfendum.

Áhorfendur á auglýsingahátíðinni í Cannes völdu auglýsinguna sem þá bestu af 400 almannaheilla-herferðum frá 35 löndum...

18.06.2009 | Allt vöruvalið í þinni Vínbúð!

Vínbúðin hefur opnað nýja og notendavæna Vefbúð á vinbudin.is. Í Vefbúðinni getur þú skoðað úrvalið í rólegheitum, pantað vörur og fengið sendar í Vínbúðina þína - án endurgjalds.

Von okkar er sú að þessi þjónusta eigi eftir að koma viðskiptavinum að góðum notum og bjóðum við þá velkomna í Vefbúð Vínbúðarinnar...

16.06.2009 | Ný Vínbúð á Flúðum

Ný Vínbúð var opnuð á Flúðum í gær, mánudaginn 15.júní. Auk þess að þjónaheimamönnum mun Vínbúðin þjóna þeim mikla fjölda ferðamanna sem leggur leið sína um svæðið á ári hverju.

Vínbúðin er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 17-18, föstudaga kl.16-18 og einnig verður opið á laugardögum frá kl. 12-14 til 1.ágúst.

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja Vínbúð.

08.06.2009 | Meira selt af áfengi en í fyrra

Sala áfengis í maí jókst um 3,6% miðað við sama mánuð í fyrra. Í kjölfar samþykktar Alþingis 28. maí um hækkun á áfengisgjaldi var mikil sala í Vínbúðunum 29. og 30. maí en hækkunin tók ekki gildi fyrr en 1. júní. Þessa tvo daga seldust 403 þúsund lítrar af áfengi eða sem nemur 21% af sölu mánaðarins. Mest jókst salan á hvítvíni um 20,8% en næst kom rauðvín með 11,9% aukningu miðað við maí 2008.

Sala áfengis fyrstu fimm mánuði ársins jókst um 1,7% miðað við sama tímabil í fyrra. Sala hvítvíns jókst um 9,2%, rauðvíns um 1,1% og lagerbjórs um 2,9%.

03.06.2009 | Vínbúðin á Höfn flytur

Vínbúðin á Höfn flytur í nýtt húsnæði í Miðbæ, Litlubrú 1. Áætlað er að opna á nýjum stað á miðvikudaginn (10.júní). Við bjóðum viðskiptavini velkomna á nýjan stað.

29.05.2009 | Áhrif 15% hækkunar gjalda á áfengis- og tóbaksverð

Alþingi hefur samþykkt 15% hækkun á gjöldum á áfengi og tóbak. Áfengisgjald er innheimt við innflutning og er innifalið í innkaupsverði ÁTVR frá birgjum. Í samræmi við reglur verður birgjum gefinn kostur á að tilkynna nýtt verð til ÁTVR og mun verðhækkunin taka gildi að því loknu...

23.05.2009 | Bíddu!

Nú í sumar standa Vínbúðirnar fyrir auglýsingaherferð undir yfirskriftinni "Bíddu - hafðu skilríkin meðferðis". Markmiðið með auglýsingunum er að vekja á jákvæðan hátt athygli á áfengiskaupaaldrinum og hvetja ungt fólk til að sýna skilríki að eigin frumkvæði.

Auglýsingarnar verða sýndar í sjónvarpi, útvarpi, netmiðlum á strætóskýlum og í bíó.

18.05.2009 | 35% meiri sala vegna Eurovision?

Sala áfengis 35% meiri Eurovisionhelgina en helgina á undan. Mestu munur um lagerbjór sem er tæplega 80% af öllu seldu magni. Sala lagerbjórs jókst um 37% á milli helga, rauðvíns um 11% og hvítvíns um 38%. Sala á öðrum tegundum jókst um 32%...

10.05.2009 | Aprílsalan meiri en í fyrra

Sala áfengis í apríl jókst um 14,7% miðað við sama mánuð í fyrra. Páskar í ár voru í apríl en í mars í fyrra. Samanburður við sömu mánuði í fyrra er því erfiður.

Sala áfengis fyrstu fjóra mánuði ársins jókst um 1,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs jókst um 2,8% og hvítvíns um 4,9% en sala á rauðvíni dróst saman um 2,4%...

03.05.2009 | Veisluvín

Vínbúðirnar bjóða viðskiptavinum frábæra þjónustu þegar halda skal veislu. Oft reynist erfitt að ákvarða rétt magn af víni fyrir veislur eða velja rétt vín með matnum og þá er gott að fá aðstoð hjá vínráðgjafa Vínbúðanna.

Afgreiðslutími Veisluvíns þjónustunnar: mán-fös: 11-17

Veisluvíns-síminn er 560-7726 og netfangið veisluvin@vinbudin.is

28.04.2009 | Lokað í Vínbúðunum 1.maí

Lokað verður í Vínbúðum, föstudaginn 1.maí.

Opið verður í öllum Vínbúðum fimmtudaginn 30 apríl líkt og um föstudag sé að ræða. Á höfuðborgarsvæðinu er því opið til kl. 19:00 í öllum Vínbúðum, nema Dalvegi, Skútuvogi og Skeifu þar sem opið er til kl. 20:00.

Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma Vínbúða er að finna hér.

08.04.2009 | Salan í mars minni en í fyrra

Sala áfengis í mars dróst saman um 11% í lítrum miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs dróst saman um tæp 9% og sala rauðvíns um 19%.

Sala áfengis í lítrum tímabilið janúar-mars miðað við sama tíma fyrir ári dróst saman um 4% miðað við sama tíma fyrir ári, úr 4.137 þús. í 3.969 þús.lítra. Sala rauðvíns dróst saman um -10% en sala lagerbjórs um -2%.

06.04.2009 | Ný Vínbúð á Flúðum

Skrifað hefur verið undir samning um leigu á húsnæði við Akurgerði 4, fyrir nýja Vínbúð á Flúðum. Áformað er að opna nýja Vínbúð þar fyrir sumarið. Vínbúðin verður sjálfsafgreiðslubúð með rúmlega 100 mest seldu tegundirnar í vöruvali.

27.03.2009 | Kælir í Heiðrúnu

Verið er að breyta Vínbúðinni Heiðrúnu um þessar mundir. Eftir helgina mun stór og glæsilegur bjórkælir verða tekinn í notkun, en hann mun geyma allan bjór sem seldur er í Vínbúðinni auk mest seldu freyði- og hvítvínanna. Um 170 tegundir af bjór eru til sölu í Vínbúðunum Heiðrúnu, Skútuvogi og Kringlunni og er kælirinn í Heiðrúnu yfir 100 fermetrar að stærð.

17.03.2009 | Fjármálaráðuneytið og ÁTVR breyta reglum til hagsbóta fyrir framleiðendur á landsbyggðinni

Gerðar hafa verið breytingar á vöruvalsreglum ÁTVR sem munu leiða til mikils sparnaðar í dreifingarkostnaði fyrir framleiðendur á landsbyggðinni. Breytingarnar fela í sér að við sérstakar aðstæður getur ÁTVR samið beint við birgja um afhendingu vöru, sem ætluð er til dreifingar á nærsvæði framleiðenda, á öðrum dreifingarstað en í vöruhús ÁTVR á Stuðlahálsi. Með því verður til dæmis kleift að taka við vörum frá Vífilfelli á Akureyri, Ölvisholt á möguleika á að afhenda vöru á Selfossi, Mjöður getur afhent vöru á Stykkishólmi og Bruggsmiðjan getur afhent vörur annað hvort á Dalvík eða Akureyri.
...sjá nánar.

12.03.2009 | Nýtt Vínblað komið í búðir

Nú er hægt að nálgast nýtt Vínblað í Vínbúðunum. Meðal efnis í blaðinu er grein eftir Höskuld Jónsson, fyrrverandi forstjóra ÁTVR þar sem hann ræðir á skemmtilegan hátt um "Bjórdaginn mikla". Einnig er þar grein um það hvers vegna og hvort við eigum að umhella víni, áfengi í mat, Mojito uppskriftir, Ítölsk vín ofl. Í blaðinu má finna grein þar sem það er kannað hvort kreppan hafi áhrif á sölu áfengra drykkja.

Vínblaðið er hægt að nálgast í næstu Vínbúð, en einnig er hægt að smella HÉR til að sjá Vínblöðin á netinu.

04.03.2009 | Ánægðustu viðskiptavinirnir í flokki smásölufyrirtækja

Í dag voru veittar viðurkenningar fyrir niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar.

Að þessu sinni var ánægja viðskiptavina 17 fyrirtækja mæld en niðurstöður byggja á svörum um 4300 manns eða um 250 viðskiptavina hvers fyrirtækis.

Í flokki smásöluverslana var ÁTVR í fyrsta sæti með 66,2 og hækkar um 2,3 stig á milli ára. ÁTVR og BYR voru einu fyrirtækin sem hækkuðu á milli ára.
..sjá nánar.

04.03.2009 | Sala áfengis í febrúar 2009

Sala áfengis í febrúar dróst saman um 9% í lítrum miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs dróst saman um tæp 8% á tímabilinu og sala hvítvíns um 3%.

Að einhverju leyti má rekja skýringuna á samdrættinum til hlaupársdags, en hann bar upp á föstudegi í fyrra. Það voru því fimm föstudagar í febrúar 2008 á móti fjórum í ár. Ekki er hægt að rekja breytingu á neyslu til afmælis bjórsins 1.mars. Ef bornir eru saman laugardagurinn 28.febrúar í ár og 1.mars í fyrra er samdrátturinn í sölu 9,7% en samdráttur í sölu bjórs 10,1% Hlutfall bjórs af heildarsölunni er einnig mjög svipað þennan dag eða rétt um 80% af seldu magni ....sjá nánar.

24.02.2009 | Vilt þú hafa það lífrænt ræktað?

Í vöruleitinni á vinbudin.is getur þú leitað að lífrænt ræktuðum vínum sem fást í Vínbúðunum. Þau vín eru sérstaklega merkt með grænu laufi.

Í vöruleitinni er hægt að leita að vínum eftir hinum ýmsu skilyrðum s.s. vörunúmeri, heiti, landi, svæði, verði, styrkleika, þrúgum, stærð, matarflokkum og og nú hvort vín hafi viðurkennda lífræna vottun.

Hægt er að fara inn á leitina með því að smella á hnappinn "Vöruleit" hér til vinstri.

19.02.2009 | Vínbúðin tilnefnd til íslensku auglýsingaverðlaunanna!

Nú er ljóst hvaða auglýsingar eru tilnefndar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna. Vínbúðin er þar tilnefnd til verðlauna í fjórum liðum:

- Vöru- og firmamerki:
Nýtt vörumerki Vínbúðanna
- Almannaheillaauglýsingar:
Láttu ekki vín breyta þér í svín (sjónvarp)
- Almannaheillaauglýsingar:
Láttu ekki vín breyta þér í svín (dagblöð)
- Vefauglýsingar:
Skilríki - getur þú sannað það?

Vínbúðirnar eru stoltar af tilnefningunum, en niðurstöður úr Lúðrinum munu liggja fyrir föstudaginn 27.febrúar nk... sjá nánar...

13.02.2009 | Vöruleit á vefnum

Nú hefur verið sett í loftið ný leitarsíða sem víkkar leitarmöguleikana á vinbudin.is til muna. Hægt er að leita að vínum eftir hinum ýmsu skilyrðum s.s. vörunúmeri, heiti, landi, svæði, verði, styrkleika, þrúgum, stærð, matarflokkum og fleiru.

Markmið leitarinnar er að auðvelda leit að ákveðnum tegundum og ennfremur að stuðla að enn betri fróðleik um vörur okkar og úrval.

Hægt er að fara inn á leitina með því að smella á "Vöruleit" í efstu stiku, eða undir "Vörur" í vinstri stiku.

04.02.2009 | Sala áfengis janúar 2009

Sala áfengis í janúar jókst um 12% í lítrum miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs jókst um 15% á tímabilinu og sala hvítvíns um 12%.

Sala rauðvíns og ókryddaðs brennivíns jókst um 4% og 8% á tímabilinu.

Skýring þessarar miklu aukningar má rekja til þess að í janúar í ár voru fimm laugardagar en fjórir í fyrra. Sala fimmta föstu- og laugardagsins (30.-31.janúar) var um 17% af heildarsölu mánaðarins.

29.01.2009 | Vínbúðin Fáskrúðsfirði flutt

Vínbúðin Fáskrúðsfirði hefur nú flutt í nýtt húsnæði að Skólavegi 59. Vínbúðin hefur verið starfrækt á Fáskrúðsfirði frá október 1999 og var fram að þessu til húsa að Búðarvegi 35.

Nýja Vínbúðin er fyrsta sjálfsafgreiðslubúðin í þessari stærð (100 tegundir). Vínbúðin er glæsileg, björt og rúmgóð og er hönnun sambærileg nýju Vínbúðunum á stór-höfuðborgarsvæðinu.

Verið velkomin í nýja Vínbúð.

19.01.2009 | Ný Vínbúð opnuð í Reykjanesbæ

Í morgun opnaði ný og glæsileg Vínbúð í Reykjanesbæ. Á sama tíma lokaði gamla Vínbúðin, sem hefur verið starfrækt í Hafnargötunni síðan 2004.

Nýja Vínbúðin er staðsett að Krossmóum 4, þar sem Samkaup er til húsa. Rýmið er rúmgott og bjart og allur bjór verður í kæli. Nóg er af bílastæðum fyrir framan Vínbúðina (beggja megin).

Afgreiðslutími Vínbúðarinnar er sá sami og áður:
Mán - fim: 11-18, fös: 11-19 og lau: 11-16

Verið velkomin í glæsilega Vínbúð!

11.01.2009 | Vínbúðin Keflavík flytur þann 19.janúar

Vínbúðin í Keflavík flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði mánudaginn 19. janúar og mun hér eftir bera heitið Vínbúðin Reykjanesbæ.

Viðskiptavinir í Reykjanesbæ verða væntanlega ánægðir með nýju Vínbúðina þar sem hún er björt og skemmtileg auk þess um hún stækkar um rúman helming. Allur bjór verður í kæli, afgreiðslukössum er fjölgað og auk þess er nóg af bílastæðum fyrir framan Vínbúðina. Aðstaða starfsfólks verður betri en áður og einnig er lager og vörumóttaka mun stærri.

Nýja Vínbúðin er staðsett við nýjan verslunarkjarna við Krossmóa 4, þar sem Samkaup er til húsa. Vínbúðin þjónar yfir 20.000 viðskiptavinum á ári hverju...

07.01.2009 | Sala ársins 2008

Sala ársins 2008 jókst um 4,2% í lítrum í samanburði við árið 2007. Alls var selt áfengi fyrir 17.809 þús. kr. með virðisaukaskatti.

Sala hvítvíns jókst um 13,4% á tímabilinu og sala rauðvíns um 3,8%.

Sala lagerbjórs og ókryddaðs brennivíns jókst um 4,3% og 6,5% á tímabilinu...

05.01.2009 | Vínbúðin Spönginni lokar

Ákveðið hefur verið að loka Vínbúðinni í Spönginni og tekur lokunin gildi frá og með 19. janúar. Allir fastráðnir starfsmenn munu halda störfum sínum og flytjast yfir í aðrar verslanir. Engar aðrar lokanir eru fyrirhugaðar hjá Vínbúðunum.

Megin ástæða þess að Vínbúðinni í Spönginni er lokað er að rekstur hennar hefur verið undir væntingum síðustu árin. Leigusamningur um húsnæðið rann út um áramótin og var ákveðið að framlengja hann ekki. Húsnæðið var orðið óhentugt miðað við þá þjónustu og vöruúrval sem viðskiptavinir óskuðu eftir. Leitað verður eftir hentugra húsnæði á svæðinu þegar aðstæður leyfa.

Viðskiptavinum er bent á Vínbúðirnar Heiðrúnu, Skútuvogi og í Mosfellsbæ sem nálægar búðir.



Eldri fréttir


 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit