Heildarstefna ÁTVR

 

Leiðarljós

Að stuðla að bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð með því að framfylgja stefnu stjórnvalda í áfengis- og tóbaksmálum

 

Stefna

Að vera í hópi fremstu þjónustufyrirtækja landsins og þekkt fyrir samfélagslega ábyrgð

 

Áherslur

 

Viðskiptavinir

  • Við setjum viðskiptavininn í öndvegi og tökum mið af væntingum hans
  • Þjónusta okkar einkennist af lipurð, fagmennsku og hlutleysi
  • Við leggjum áherslu á fræðslu til viðskiptavina

Vöruval

  • Við stuðlum að bættri áfengismenningu með ábyrgu vöruvali
  • Við viljum að vöruval okkar sé áhugavert og byggi á fjölbreytileika og gæðum
  • Við gætum hlutleysis við val og dreifingu á vöru
  • Við leitumst við að bjóða eingöngu vörur sem framleiddar eru samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum

Samfélagsleg ábyrgð

  • Við störfum með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi og vinnum gegn skaðlegri notkun áfengis og tóbaks
  • Við viljum tryggja að aldursmörk til áfengiskaupa séu virt
  • Við viljum vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks með því að hindra framboð á óæskilegum vörum
  • Við berum virðingu fyrir umhverfinu og leitum leiða til að lágmarka umhverfisáhrif af starfsemi okkar

Hagkvæmni

  • Við förum vel með verðmæti og notum auðlindir af ábyrgð
  • Við leitum stöðugt nýrra leiða til þess að bæta rekstur okkar

Mannauður

  • Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð
  • Við viljum að starfsfólk njóti virðingar og gerum því kleift að sinna starfi sínu á sem bestan hátt
  • Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að auka þekkingu sína og hæfni

Stefnan er í gildi frá 1.janúar 2012


Til baka


(0)
shopping cart
Samtals 0 kr.
Litla karfan
Engar vörur í körfu
n/a
n/a stk * n/a = n/a
Sett í körfuna


 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit