Listaverk í vínbúðum
ÁTVR gefur listamönnum sem þess óska tækifæri til að sýna verk sín í vínbúðum fyrirtækisins. Neðangreindar reglur gilda varðandi slíkar sýningar:
- Tímabil fyrir sýningu hvers listamanns eru 4 mánuðir. Undirbúningstími er innan sýningartímabils. Með undirbúningi er átt við það tímabil sem listamaður þarf til þess að setja upp/ taka niður listaverk. Heimilt er listamanni að framlengja sýningu, ef ekki er annar listamaður búinn að semja um tímabilið sem á eftir kemur. Samþykki ÁTVR þarf fyrir framlengingu sýningar.
Tímabilin eru: 01.05. – 31.08 / 01.09. – 31.12. / 01.01. – 30.04.
- Val á listamanni fer fram eftir mati hverju sinni, þó skal hafa eftirfarandi til hliðsjónar:
-
Listamaður uppfylli skilyrði um lágmarksmenntun s.s. háskólapróf frá viðurkenndum listaháskóla, sambærilegri stofnun eða aðra menntun skv. mati
-
Listamaður skilar inn upplýsingum um náms- og sýningarferil
-
Listaverk skoðuð af starfsmanni ÁTVR fyrir uppsetningu í vínbúð
-
Forstjóri staðfestir val á listamanni skv. tillögu þar að lútandi
- Listamaður ber ábyrgð á að setja upp/taka niður listaverk í vínbúðum í samráði við ÁTVR.
- Flutningur listaverka til og frá hverri vínbúð er á ábyrgð og kostnað listamanns.
- ÁTVR veitir viðskiptavinum sem þess óska upplýsingar um verð á listaverkum og nafn og símanúmer þar sem hægt er að ná sambandi við listamann vegna nánari upplýsinga og/eða sölu listaverka.
- Greiðsla listamanns til ÁTVR vegna sýningar felst í listaverki sem listamaður og fulltrúi ÁTVR semja um fyrirfram.
- Gerður verður skriflegur samningur sem tekur á ofangreindum atriðum sem forstjóri ÁTVR og viðkomandi listamaður undirrita.
Nánari upplýsingar veitir Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs í síma 560-7700 eða á netfangi einar@vinbud.is
Til baka
n/a
n/a
stk *
n/a
=
n/a
Sett í körfuna