Mannauður
Stjórnendur ÁTVR leggja áherslu á að skapa starfsumhverfi sem laðar að hæfa starfsmenn er búa yfir frumkvæði og vinsamlegu viðmóti, veiti góða þjónustu og bregðist við mismunandi þörfum viðskiptavinarins.
Stöðugt er unnið að því að tryggja starfsmönnum ákjósanleg starfsskilyrði, góða starfsaðstöðu og tryggja þeim möguleika á að vaxa og dafna í starfi. Lögð er áhersla á þjálfun og menntun til þess að auka þekkingu og starfsframlag innan fyrirtækisins. Starfræktur er skóli, Vínskóli vínbúða, sem miðar að því að auka vöruþekkingu starfsfólks í þeim tilgangi að geta frætt og þjónað viðskiptavinum sem best.
Við hjá ÁTVR stuðlum að góðum starfsanda, þar sem traust og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi.
Laus störf
Til baka
n/a
n/a
stk *
n/a
=
n/a
Sett í körfuna