Samstarfsaðilar

Umferðarstofa

Hlutverk Umferðarstofu er að auka lífsgæði fólks með því að efla öryggi í umferðinni, enda eitt af meginmarkmiðunum að umferð sé örugg fyrir alla. Vínbúðirnar og Umferðarstofa hafa átt gott samstarf undanfarin ár en eftirfarandi auglýsingaherferðir eru meðal annars afrakstur þess samstarfs.

 

Sá sem flöskustútur lendir á... (2009)
Vínbúðirnar og Umferðarstofa unnu saman að auglýsingaherferð sem heitir „Sá sem flöskustútur lendir á“ en með þessu átaki er ökumönnum gerð grein þeim afleiðingum sem ákvörðunin um að aka eftir neyslu áfengis getur haft. Herferðin var fyrst og fremst hönnuð fyrir netmiðla og útvarp.

 

 
 

 

Er driverinn drukkinn? (2008)
Auglýsingaherferð í sama anda og "Aktu aldrei undir áhrifum", þar sem áhersla var lögð á að golfarar slepptu því að aka eftir að hafa fengið sér "einn" á vellinum.

Skilaboðin voru þessi: Næst þegar þú stoppar við þá nítjándu og ætlar að fá þér einn skaltu hugsa til þeirra 68 einstaklinga sem hafa slasast alvarlega í umferðarslysum sem rekja má til ölvunaraksturs á síðastliðnum fimm árum. BARA EINN ER EINUM OF MIKIÐ.

 

 

Bara einn (2006)
Í þessari auglýsingaherferð er verið að vekja ökumenn til umhugsunar um alvarleika þess að aka undir áhrifum áfengis – jafnvel þótt aðeins hafi verið dreypt á einu glasi.  Sjá nánar

 

 

 

 

Aktu aldrei undir áhrifum! (2004)
Vínbúðirnar og Umferðarstofa tóku höndum saman um gerð auglýsinga sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir ölvunarakstur. 
 Sjá nánar

    

 

 

 

Á vefsíðu Umferðarstofu er hægt að nálgast frekari upplýsingar um forvarnir í umferðarmálum: http://us.is/


Til baka


(0)
shopping cart
Samtals 0 kr.
Litla karfan
Engar vörur í körfu
n/a
n/a stk * n/a = n/a
Sett í körfuna


 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit