Vínbúðirnar hafa unnið með SAMAN-hópnum í forvarnarstarfi, en sumarið 2006 var sett fram kynningarefni í því skyni að vekja fólk til umhugsunar um að það er lögbrot að útvega unglingum áfengi undir kjörorðunum "Hvaða lögbrot finnst þér í lagi að fremja?"
Um SAMAN hópinn
Frá árinu 1999 hefur hópurinn unnið saman að forvörnum í tengslum við atburði þar sem líklegt er að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna (s.s. samræmd próf, 17. júní, verslunarmannahelgi og áramót).
Markmið hópsins eru meðal annars að auka samstarf fólks sem vinnur að forvörnum, og vinna að því að vekja athygli á þeirri ógn sem börnum og unglingum stafar af útbreiðslu áfengis og vímuefna í samfélaginu. Starf hópsins miðar að því að styrkja og styðja foreldra í sínu uppeldishlutverki og því er beint til foreldra, með skýrum hætti, að þeir kaupi ekki eða veiti börnum áfengi – og bent á að þar setja landslög mörkin við 20 ára aldur.
Á vefsíðu SAMAN hópsins er hægt að nálgast frekari upplýsingar um forvarnir og starfsemi hópsins: http://www.samanhopurinn.is/