
Vínbúðirnar og Lýðheilsustöð hafa unnið saman að nokkrum verkefnum... Gefinn var út bæklingur undir yfirskriftinni "Hvað veist þú um áfengi", þar sem kynntar voru afleiðingar áfengis.
Um Lýðheilsustöð
Lýðheilsustöð er miðstöð vímuvarna í landinu. Stöðin vinnur fræðsluefni um áfengi og önnur vímuefni fyrir almenning og stuðlar að samvinnu og samræmingu starfa á meðal allra þeirra sem vinna að vímuvörnum.
Á vegum Lýðheilsustöðvar eru unnar kannanir á áfengis- og vímuefnaneyslu landsmanna. Einnig er safnað öðrum tölfræðilegum upplýsingum sem gefa vísbendingar um stöðu þeirra mála í landinu og skaðvænlegar afleiðingar þeirrar neyslu.
Á vefsíðu Lýðheilsustöðvar er hægt að nálgast ýmsan fróðleik um forvarnir varðandi áfengi og vímuefni: http://lydheilsustod.is/