Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Breytingar á Sauðárkróki

15.06.2016

Vínbúðin Sauðárkróki hefur tekið stakkaskiptum, en unnið hefur verið hörðum höndum við endurbætur undanfarnar vikur. Búðin er á sama stað og áður, en hefur verið endurnýjuð mjög mikið og inngangurinn í Vínbúðina meðal annars færður til. Búðin er því eins og ný og vinnuaðstaða mun betri, en töluverður munur er á aðstöðu fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk. Framkvæmdum er þó ekki alveg lokið þar sem lagfæringum við hús og lóð að utan er enn ólokið.
 
Við óskum starfsfólki búðarinnar og viðskiptavinum til hamingju með breytingarnar.