Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Jafnlaunavottun

11.05.2016

ÁTVR hlaut í síðustu viku Gullmerki í jafnlaunaúttekt PwC í annað sinn.  Jafnlaunaúttektin hefur það markmið að greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja og metur hvort fyrirtæki greiði báðum kynjum sömu laun fyrir sambærileg störf.  ÁTVR fékk engar athugasemdir við úttektina og þurfti ekki að gera neinar sérstakar úrbætur eða breytingar til þess að hljóta Gullmerkið.  

Jafnlaunaúttektin greinir upplýsingar um raunverulegan launamun kynjanna þegar tekið hefur verið tillit til þeirra þátta sem mest hafa áhrif á laun s.s. menntun, aldur, starfsaldur, starfaflokk og vinnustundir.  Niðurstaðan er frábær staðfesting á þeirri stefnu sem ÁTVR hefur lengi fylgt og sannar að konum og körlum er greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf.

Jafnlaunaúttekt 2016