Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin tilnefnd

26.01.2016

Vinbudin.is hefur verið tilnefndur einn af fimm bestu opinberu vefum landsins. 

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, en átta manna dómnefnd skipuð sérfræðingum í vefmálum velur bestu vefina hverju sinni.  Hátt á annað hundrað verkefni voru send inn að þessu sinni, en verðlaun verða veitt í 15 flokkum.

Verðlaunaafhending og uppskeruhátíð Íslensku vefverðlaunanna verður næstkomandi föstudag, 29. janúar 2016.