Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný Vínbúð opnar í Spönginni

26.11.2015

Vínbúðin hefur nú opnað á ný í Spönginni í björtu og fallegu húsnæði. Vínbúðirnar eru þar með orðnar 50 talsins, víða um land. Aðstaða er öll til fyrirmyndar, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Afmarkað kælt svæði er fyrir bjórinn og mikið lagt upp úr vinnuhagræði fyrir starfsfólk.

Opnunartíminn er mánudaga- fimmtudaga 11-18, föstudaga 11-19 og laugardaga 11-18.

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja Vínbúð!