Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Neskaupstað flutt

12.11.2015

Vínbúðin Neskaupstað hefur opnað í nýju og glæsilegu húsnæði að Hafnarbraut 15. Vínbúðin er afar vel staðsett og aðgengi hið besta viðskiptavini, auk þess sem hún hefur verið stækkuð til muna. 
Opnunartími  Vínbúðarinnar er sá sami og áður, mánudaga -föstudaga 14-18, og bjóðum við viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega Vínbúð.