Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Lífræn vín

24.06.2015

Vinsældir lífrænna vína hafa aukist til muna á undanförnum árum í kjölfar vaxandi áherslu á heilsusamlegt líferni og umhverfisvernd. Úrval lífrænna vína hefur aldrei verið meira í Vínbúðunum og í júní og júli er sérstök áhersla lögð á þessi vín á margvíslegan hátt. Þá standa yfir þemadagar þar sem vín er framleidd eru á lífrænan og sanngjarnan hátt eru í hávegum höfð.

Gefinn var út fróðlegur bæklingur þar sem þessi hugtök eru útskýrð, auk þess sem finna má uppskriftir af hollum og girnilegum réttum frá Gló sem henta sérlega vel með þessum vínum. Í nýjasta Vínblaðinu er einnig ítarleg og áhugaverð frétt eftir Gissur Kristinsson vínráðgjafa um lífrænu vínin.
Verið velkomin á lífræna daga í næstu Vínbúð!