Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Lífrænir dagar í Vínbúðunum

03.06.2015

Í júní og júlí eru þemadagar í Vínbúðunum þar sem lífræn vín verða í hávegum höfð. Vaxandi áhersla á heilsusamlegt líferni og umhverfisvernd hefur haft það í för með sér að vinsældir lífrænna vína hafa aukist til muna á undanförnum árum og hefur úrval þeirra aldrei verið meira í Vínbúðunum. Í næstu Vínbúð má nálgast bækling með uppskriftum af girnilegum réttum frá veitingastaðnum Gló ásamt lista yfir lífræn vín sem kjörið er að njóta með.

Njótið vel!