Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýtt Vínblað komið út

10.12.2010

Nýtt Vínblað komið út

Nú er glænýtt og hátíðlegt Vínblað komið út. Í blaðinu er meðal annars að finna girnilegar uppskriftir fyrir desemberveisluna sem Daníel Sigurgeirsson, yfirmatreiðslumaður á Argentínu steikhúsi, setti saman sérstaklega fyrir Vínbúðirnar. Einnig er skemmtileg og fróðleg grein um Madeira og porvínssósur sem mörgum þykja ómissandi á þessum árstíma. Páll vínráðgjafi deilir með okkur uppskriftum af ljúffengum og hátíðlegum kokteilum sem upplagt er að bjóða þegar vini og vandamenn ber að garði.  Vínblaðið er hægt að nálgast frítt í öllum Vínbúðum, auk þess sem það er birt hér á síðunni. Njótið vel!