Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Engin frekari áform um lokun Vínbúða

10.11.2010

Engin frekari áform um lokun VínbúðaVegna frétta sem hafa birst um lokun Vínbúða vill ÁTVR taka fram að engin áform eru um frekari lokun Vínbúða umfram það sem þegar hefur komið fram.

ÁTVR hefur sagt frá því að fyrirhugað er að loka Vínbúðinni í Garðabæ frá og með 1. janúar 2011. Þá hefur lengi hefur verið áhugi á að sameina Vínbúðirnar á Dalvegi og í Smáralind. Í árslok 2009 var auglýst eftir húsnæði fyrir sameinaða Vínbúð en niðurstaðan varð að halda rekstrinum áfram óbreyttum þar til leigusamningi í Smáralind lýkur haustið 2011. Endanleg staðsetning þeirrar Vínbúðar hefur ekki verið ákveðin.