Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Jólabjórinn væntanlegur

05.11.2010

Jólabjórinn væntanlegurMargir bíða spenntir eftir jólabjórnum eins og undanfarin ár, en mikið hefur verið spurt um það hvenær hann berst í Vínbúðir. Sala jólabjórsins mun hefjast, þriðja fimmtudag í nóvember, eða þann 18.nóvember næstkomandi.

Samtals 17 vörunúmer eru væntanleg og meðal nýrra vara má nefna Jólajökul, sem framleiddur er í Stykkishólmi og tvenns konar gjafapakkningar af jólabjór frá Færeyjabjór.