Líkt og Cabernet Franc stendur í skugganum af nafna sínum Sauvignon þá stendur rauða þrúgan Pinot Meunier í skugganum af bróður sínum Pinot Noir. Leikur lykilhlutverkið í Champagne þar sem hún er útbreiddasta þrúgan og er næstum helmingur af landi undir vínvið þar með Pinot Meunier. Hún hefur þann kost að blómgast seinna en Pinot Noir, þola betur frost og gefa meira af sér. Hún hefur hærra sykurinnihald en minna alkohól en bæði Chardonnay og Pinot Noir og því mikið notuð í kampavín sem drekka á ung. Ekki mikið ræktuð utan Champagne en hefur þó staðið sig vel í Ástralíu og tilraunir til að rækta hana til freyðivínsgerðar í Kaliforníu eru hafnar.