Á eftir Sangiovese er Montepulciano útbreiddasta ítalska rauða þrúgan. Er algengust á Mið-Ítalíu og sérstaklega á austurströndinni. Upprunnin í Toskana eins og Sangiovese og oft ruglað saman við hana. Gefur af sér vín sem eru kraftmikil í æsku og einungis með næg tannín til að endast í 3-4 ár. Einnig eru gerð úr henni þekkt rósavín.
Er líklega ekki hágæðaþrúga en er mjög útbreidd vegna þess hve plantan gefur mikið af sér og hve vínin er auðdrekkanleg á meðan þau eru ung. Þekktast víngerðarsvæðið er líklega Montepulciano d'Abruzzo.