Áfengisstefna stjórnvalda

 

Stefna stjórnvalda í áfengismálum

- birtmeð frumvarpi um lög um verslun áfengi og tóbak.

 

Stefna stjórnvalda

Stefna stjórnvalda í áfengismálum er að lágmarka skaðlega neyslu áfengis. Á það bæði við heilsufarslegan og félagslegan skaða í samfélaginu. Sérstaklega er stefnt að því að vernda börn og unglinga gegn áfengi og markaðssetningu þess. Grunnstoðir áfengisstefnunnar eru að starfrækja einkasölu ríkisins á áfengi, háir áfengisskattar og bann við áfengisauglýsingum og markaðsstarfsemi tengdri áfengi.

Aðalmarkmið áfengisstefnunnar eru eftirfarandi:

 

Stýring neyslu:

  • Draga úr heildarneyslu (stýra og hafa hemil á heildarneyslu).
  • Draga úr óheppilegu neyslumynstri.
  • Leyfa ekki óæskilegar vörur.


Verndun ungs fólks:

  • Leyfa ekki sölu á vörum sem eru markaðssettar fyrir ungt fólk.
  • Seinka fyrstu kynnum unglinga af áfengi.
  • Draga úr áfengisneyslu aldurshópsins 18 ára til tvítugs.
  • Vernda ungt fólk, börn og ófædd börn.


Bann við auglýsingum og markaðstengdri starfsemi:

  • Bann við auglýsingum.
  • Leyfa ekki sölu á vörum sem fallnar eru til þess að blekkja neytendur.
  • Berjast gegn ólöglegri sölu á áfengi.
  • Markaðstengd starfsemi til að auka sölu á áfengi ekki leyfð.


Heilsugæsla, forvarnir og skaðsemi:

  • Minnka ölvunarakstur.
  • Upplýsa, fræða og vekja fólk til vitundar um áhrif skaðlegrar neyslu áfengis.
  • Virkja heilsugæslu fyrir fólk með áfengistengd vandamál.
  • Tengja betur saman heilbrigðisyfirvöld og meðferðargeira.
  • Ýta undir og hvetja til forvarna á sviði stjórnsýslu og sveitarfélaga.
  • Viðhorfsbreyting hjá 60 ára og eldri gagnvart áfengisneyslu.
  • Efla eftirlit með áfengi og rannsóknir.


Sjá nánar á vef Alþingis



 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit