Bjór og matur

Girnilegur bæklingur um bjór og mat. Magnús Traustason vínráðgjafi fræðir okkur um hvaða bjór er best að velja með ýmiskonar mat. Einnig eru í bæklingnum girnilegar uppskriftir frá veitingastaðnum Munnhörpunni sem tilvalið er að prófa.

Eftirréttir

Girnilegur bæklingur um eftirrétti og vínin með. Páll Sigurðsson vínráðgjafi fræðir okkur um hvaða vín er best að velja með eftirréttunum. Einnig eru í bæklingnum uppskriftir af ómótstæðilegum eftirréttum frá Hafliða í Mosfellsbakaríi.

Smáréttaveisla

Glæsilegur bæklingur um smárétti og upplýsingar um hvernig velja á vínið með. Uppskriftir af fimm girnilegum smáréttum.

Villibráð og hátíðarmatur

Í þessum bæklingi eru settar fram nokkrar hugmyndir að vínum sem gætu hentað með villibráð og öðrum hátíðarmat. Girnilegar villibráða-uppskriftir fylgja.

Ostaveisla

Í þessum bæklingi er leitast við að aðstoða þig við að velja vín með ostum. Einnig uppskriftir af góðum osta-réttum ásamt ómissandi osta-vín töflu þar sem bornir eru saman nokkrir ólíkir ostar og hvernig þeir henta með ákveðnum þrúgutegundum.

Kokteilbæklingur

Úrval af frábærum kokteil-uppskriftum. Vinsælasti bæklingurinn í Vínbúðinni!

Fiskiveisla

Í þessum bæklingi er að finna góðar hugmyndir um val á víni með fiskréttum. Einnig eru í bæklingnum girnilegar fiskiuppskriftir.

(0)
shopping cart
Samtals 0 kr.
Litla karfan
Engar vörur í körfu
n/a
n/a stk * n/a = n/a
Sett í körfuna


 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit