Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis í janúar minni en í fyrra

04.02.2010

Sala áfengis í janúar minni en í fyrraSala áfengis í janúar dróst saman um 9% í lítrum miðað við sama mánuð árið 2009.   Sala bjórs dróst saman um 8,5% og sala rauðvíns um tæplega 8%.

 


Ekki er hægt að draga ályktanir um mikinn samdrátt út frá þessum tölum einum saman.  Þar sem langflestir viðskiptavinir koma í Vínbúðirnar á föstudögum verður að hafa í huga að í janúar 2010 eru fjórir föstudagar en í janúar 2009 voru fimm föstudagar.

 

Sala áfengis í janúar minni en í fyrra