Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Opnað aftur á Hvammstanga

21.11.2014

Opnað aftur á HvammstangaNý og glæsileg Vínbúð hefur nú verið opnuð á Hvammstanga, en töluverðar breytingar hafa verið gerðar á búðinni. Nú er ekki lengur afgreitt yfir borð, heldur ná viðskiptavinir sjálfir í sínar vörur eins og í öðrum Vínbúðum.


Vínbúðin á Hvammstanga hefur verið starfrækt síðan í júní árið 2000, en hún flutti í núverandi húsnæði í september 2005 í byggingarvörudeild Kaupfélagsins.

 

Við bjóðum viðskiptavini velkomna!