Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Endurbætur á Djúpavogi

18.07.2014

Breytingum á Vínbúðinni á Djúpavogi er nú lokið.Breytingum á Vínbúðinni á Djúpavogi er nú lokið.  Með tilkomu nýrra innréttinga hefur rýmið stækkað fyrir viðskiptavini og Vínbúðin nú öll bjartari og skemmtilegri.  Hingað til hefur verið afgreitt yfir borð á Djúpavogi en nú geta viðskiptavinir sótt vörur sínar sjálfir í hillur eins og í öðrum Vínbúðum.  Við erum sannfærð um að breytingarnar verði viðskiptavinum sem og starfsfólki til ánægju og þökkum um leið þolinmæði á meðan á framkvæmdum hefur staðið.