Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin í Hafnarfirði flytur

24.03.2014

Vínbúðin í Hafnarfirði flyturVínbúðin Hafnarfirði flytur á morgun, þriðjudag á nýjan stað að Helluhrauni 16-18 (við hlið Bónuss). Nýja Vínbúðin er öll hin glæsilegasta og vöruvalið hefur verið stóraukið. Vínbúðin í Hafnarfirði verður þar með fjórða Vínbúðin sem hefur allt vöruvalið til sölu, hinar eru Heiðrún, Kringlan og Skútuvogur. Húsnæði Vínbúðarinnar er mun stærra en áður, komið verður upp rúmgóðum kæli fyrir bjór og öll aðstaða fyrir viðskiptavini og starfsfólk hefur verið bætt til muna. Nýja Vínbúðin liggur vel við umferð og næg bílastæði eru til staðar.

Á sama tíma lokar núverandi Vínbúð sem staðsett er í verslunarmiðstöðinni Firði, en Vínbúðin opnaði þar árið 1994 og hefur því verið á sama stað í tæp 20 ár. Á síðustu árum hefur þróunin verið sú að viðskiptavinir gera meiri kröfur um gott aðgengi, kæla og vöruval og því er þessi nýja Vínbúð kærkomin lyftistöng fyrir viðskiptavini í Garðabæ og Hafnarfirði.

Opnunartími í nýju Vínbúðinni verður sá sami og verið hefur í Hafnarfirði, þ.e. mánudaga – fimmtudaga 11 – 18, föstudaga 11 – 19 og laugardaga 11 – 18.

Verið velkomin!