Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Farsímavefur Vínbúðanna

22.12.2011

Farsímavefur VínbúðannaNú hefur nýr farsímavefur Vínbúðanna litið dagins ljós. Vefurinn er á slóðinni m.vinbudin.is en þar er hægt að skoða staðsetningar Vínbúða, afgreiðslutíma, helstu fréttir og fróðleik um Veisluvín.

Markmiðið með vefnum er að viðskiptavinir geti nálgast helstu upplýsingar á skjótan hátt í farsímum sínum hvar og hvenær sem er.

Við vonum að viðskiptavinir geti nýtt sér þessa þægilegu nýjung á ferðalögum sínum og í amstri dagsins.