Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Bjór og matur í Vínbúðunum

04.10.2011

Bjór og matur í VínbúðunumÍ október eru þemadagar í Vínbúðunum þar sem áhersla er lögð á bjór og mat. Gríðarlega fjölbreytt úrval af bjór er í boði víðs vegar um heiminn. Hefðbundnir bjórstílar skipta hundruðum og tilraunaglöð brugghús nútímans eiga það til að brugga ansi skrautleg tilbrigði við þá sem gaman er að para við mat.

 

Í Vínbúðunum má nálgast bækling með 6 uppskriftum að einföldum og góðum réttum sem Peter Hansen, yfirkokkur á Munnhörpunni, útbjó og Vínráðgjafar Vínbúðanna ráðleggja með valið á bjórnum með. Einnig er nýútkomið smárit þar sem Vínráðgjafinn Magnús Traustason varpar ljósi á það sem í boði er í hinum ævintýralega heimi bjórsins.

 

Einnig er hægt að skoða bæklingana okkar á vefnum: