Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýtt og spennandi Vínblað

20.06.2011

Nýtt og spennandi VínblaðNú er hægt að nálgast nýjasta Vínblaðið frítt í næstu Vínbúð. Í blaðinu eru góð ráð fyrir fríið, sumarlegar uppskriftir frá veitingastaðnum UNO og uppskriftir af kokteilum sem hægt er að búa til úr hráefni sem til er í flestum ísskápum.

 

Einnig er í blaðinu rætt um argentínskar matarhefðir, þrúgur frá Argentínu og birt fróðleg grein um mikilvægi forvarna og samspil milli foreldra og unglinga varðandi áfengi.

 

Vínblaðið er hægt að nálgast frítt í næstu Vínbúð, en einnig er hægt að skoða það hér á vinbudin.is.