Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Viðskiptavinir Vínbúðanna ánægðir!

23.02.2011

Viðskiptavinir Vínbúðanna ánægðir!

Í morgun voru kynntar niðurstöður í Íslensku ánægjuvoginni, en Vínbúðirnar hlutu hæstu einkunn fyrirtækja á smásölumarkaði.

 

Þetta er í tólfta sinn sem mælingar á ánægju viðskiptavina eru gerðar með þessum hætti, en Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup, standa sameiginlega að verkefninu. Markmið Ánægjuvogarinnar er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina. 

 

Starfsfólk Vínbúðanna er stolt af þessum árangri og þakkar viðskiptavinum góðar viðtökur.

 

Á myndinni má sjá Einar Snorra Einarsson, framkvæmdastjóra hjá Vínbúðunum, taka við viðurkenningu úr hendi Gunnhildar Arnardóttur, framkvæmdastjóra Stjórnvísi. 

Viðskiptavinir Vínbúðanna ánægðir! 
Sjá auglýsingu