Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Allur jólabjór á einum stað á vefnum

22.11.2010

Allur jólabjór á einum stað á vefnum

Jólabjórinn hefur vakið mikla athygli á þessum árstíma, en þetta árið eru 13 tegundir jólabjóra í sölu. Meðal nýrra vara má nefna Jólajökul, sem framleiddur er í Stykkishólmi og tvenns konar gjafapakkningar af jólabjór frá Færeyjabjór.

Hægt er að fá lista yfir alla jólabjóra sem eru í sölu í Vínbúðunum með því að haka við "Tímabundið í sölu" í vöruleitinni á vinbudin.is. Þar er einnig hægt að fá lista yfir allar nýjar vörur í hverjum mánuði og þær gjafapakkningar sem eru í boði svo eitthvað sé nefnt.