Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Óverulegur samdráttur í sölu áfengis í sumar

06.09.2010

Óverulegur samdráttur í sölu áfengis í sumarSala áfengis sumarmánuðina júní, júlí og ágúst er örlítið minni en sömu mánuði í fyrra.  Sala á rauðvíni, hvítvíni og freyðivíni er meir en sömu mánuði 2009 en sala á bjór og sterkum vínum er minni.  Athygli vekur að sala á freyðivíni eykst talsvert á  milli ára en sala sumarsins nær hins vegar ekki sölu sömu mánaða 2007 en þá seldust  um 30 þús. lítrar af freyðivíni.


Fyrstu átta mánuði ársins er samdráttur í seldum lítrum 6% á milli ára.  Minni samdráttur er í sölu á hvítvíni en rauðvíni en hlutfallslega hefur dregið meira úr sölu bjórs eða 6% á milli ára.   Sala á ókrydduðu brennivíni og vodka og blöndum drykkjum dregis mikið saman á milli ár.

 

Sala áfengis í sumar