Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Mikill samdráttur í sterkum og blönduðum drykkjum

04.05.2010

Það sem af er árinu hefur sala á áfengi dregist saman í lítrum talið um 7,8% miðað við sama tímabil árið 2009.   Ekki er raunhæft að bera saman sölu í apríl á milli ára þar sem páskarnir hafa mikil áhrif en í ár voru páskarnir í mars en voru í apríl í fyrra. 

Sala hefur minnkað í  nær öllum flokkum áfengis en mismikið.  Það sem af er árinu er samdrátturinn hins vegar mest áberandi í sterkum og blönduðum drykkjum. 

 

Mikill samdráttur í sterkum og blönduðum drykkjum