Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin á Hellu lokar tímabundið

17.03.2010

Vegna framkvæmda við tengibyggingu milli Suðurlandsvegar 1 og 3 verður VÍNBÚÐIN á Hellu lokuð tímabundið. ÁTVR mun í samvinnu við sveitarstjórn Rangárþings ytra leita leiða til að leysa húsnæðismál Vínbúðarinnar sem allra fyrst.. Viðskiptavinum er bent á Vínbúðirnar á Hvolsvelli og Selfossi.

Þriðjudaginn 23. mars verður opnuð ný Vínbúð á Hvolsvelli.  Vínbúðin flytur sig um set og er nú í húsnæði við hliðina á N1.  Vínbúðin er sjálfsafgreiðslubúð en fram til þessa hefur verið afgreitt yfir borð.

Þá hafa staðið yfir endurbætur á Vínbúðinni á Selfossi og er þeim að ljúka nú fyrir páska.

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í næstu Vínbúð.   Opnunartíma Vínbúðanna má sjá á vef okkar vinbudin.is