Fréttasafn

Fleiri vínbúðum breytt

Vínbúðirnar í Hafnarfirði og á Ísafirði hafa breytt um ásýnd eftir miklar endubætur síðustu vikurnar og eru nú orðnar fallegri og þægilegri en áður. Búðirnar hafa ekki eingöngu breytt um útlit heldur er skipulagið orðið annað þar sem vörum hefur verið endurraðað til þæginda fyrir viðskiptavini og starfsmenn.

Verið er að vinna að verulegum endurbótum á vínbúðinni á Eiðistorgi og gert er ráð fyrir að þeim ljúki á næstum dögum.

Vínbúðirnar á Egilsstöðum, Hvammstanga og í Vestmannaeyjum eiga einnig von á andlitslyftingu á næstunni.

 


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit