Fréttasafn
Ný vínbúð í Þorlákshöfn
Þann 12. mars síðastliðinn, var undirritaður samningur milli ÁTVR og Olíufélagsins ehf. um samstarf vegna reksturs á vínbúð í Þorlákshöfn og leigu á húsnæði.
Vínbúðin verður við Óseyrarbraut 4 og er í flokki 80 tegunda vínbúða. Verslunarstjóri verður Brynjólfur Guðmundsson.
Gert er ráð fyrir að vínbúðin verði opnuð í maí næstkomandi.
Til baka