Fréttasafn

Lokað á Þorláksmessu og 30. desember

Vínbúðirnar verða lokaðar bæði á Þorláksmessu og daginn fyrir gamlársdag að þessu sinni. Dagana ber upp á sunnudag og samkvæmt áfengislögum er óheimilt að hafa áfengisverslanir opnar á sunnudögum.
 
Á Þorláksmessu í fyrra voru 32.568 manns afgreiddir í Vínbúðunum og 30. desember voru 38.156 afgreiddir. Í vikunni fyrir jól í fyrra voru afgreiðslur 113.433 og í vikunni fyrir áramót voru þær 94.765. Ljóst er því að margir verða að breyta út frá innkaupavenjum sínum í ár.
 
Reynt verður að koma sem best til móts við þarfir viðskiptavina Vínbúðanna í kringum hátíðarnar. Afgreiðslutíminn á höfuðborgarsvæðinu og í stærri verslunum s.s. á Akureyri, Keflavík og Selfossi er til tíu um kvöldið laugardaginn 22. desember. Fimmtudag og föstudag fyrir jól er afgreiðslutíminn frá ellefu að morgni til átta um kvöldið og sama á við um föstudag og laugardag fyrir áramót. Opið er frá 9 – 13 á aðfangadag og til kl. 14 á gamlársdag. Vínbúðirnar í Kringlunni og Smáralind verða þó ekki opnaðar fyrr en 10.00 þessa daga.  
 
Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma vínbúða um allt land er að finna HÉR.


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit