Fréttasafn

Ánægðustu viðskiptavinirnir í flokki smásölufyrirtækja

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2005 voru kynntar á hádegisverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík 7. mars 2006.


Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, í hópi vinningshafa Íslensku ánægjuvogarinnar.

Vínbúðirnar hlutu viðurkenningu Íslensku ánægjuvorgarinnar fyrir hæstu einkunn í flokki smásölufyrirtækja, þ.e. olíufélaga, stórmarkaða og Vínbúða. Vínbúðirnar lentu í fyrsta sæti með 69,5 stig en fyrirtækið hækkaði sig mest allra fyrirtækja í mælingunni í ár eða um 3,1 stig.

Íslenska ánægjuvogin er félag, sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og IMG – Gallup standa að hvað varðar þátttöku í Evrópsku ánægjuvoginni. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum, sem hafa áhrif á hana, s.s. ímynd, mat á gæðum, og tryggð viðskiptavina. Mælingin er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa leitt í ljós að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur það get sér vonir um.

Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir góða umsögn.


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit