Fréttasafn

Norðmenn fræðast um fyrirkomulag samstarfsverslana hjá ÁTVR

Hópur frá Vinmonopolet, norsku áfengiseinkasölunni,  hefur dvalið hér undanfarna daga til að fræðast um fyrirkomulag samstarfsverslana hjá ÁTVR.  Hjá Vinmonopolet er í skoðun að opna smærri verslanir á landsbyggðinni.  Heimsókn þeirra er liður í þeirri skoðun þar sem horft er til þess hvernig vínbúðir eru reknar í samstarfi við þriðja aðila hér á landi. Hópurinn heimsótti Vínbúðirnar  á Hólmavík, Búðardal, Stykkishólmi, Ólafsvík, Grundarfirði, Akranesi og Borgarnesi auk vínbúða á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
 


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit